Ég myndi elska það að rústa Garmin kortinu í samkeppni!

Er hægt að komast í lista einhvers staðar yfir fídusa sem eru í boði á Íslandskortinu sem R. Sigmundsson gefur út? Síðan gætum við athugað hvað Garmin tækin styðja og nýtt það í ystu æsar (eftir áhuga okkar). Gætum byrjað að gera eitt hverfi „fullkomið“ og séð hvernig það virkar.

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

On 1.12.2010 21:58, Karl Georg wrote:
Hæ, nú þar sem bing kortin auðvelda okkur til muna að setja innn hús og 
húsnúmer númer inn í OSM langar mig að forvitnast um eftirfarandi atriði:

Geta helstu gps bíltæki birt útlínur húsa ásamt húsnúmerum? Eða er bara boðið 
uppá húsnúmera routing án auka grafíks eins og við þekkjum td. úr garmin 
kortunum?

Annað, í sumum tækjum eru 3d módel af þekktum byggingum, geta osm kort boðið 
upp á þessháttar skraut ?

Eitt enn, Getum við haft svona akreinavísa fyrir leiðsögutæki ? Þar sem td þeim 
sem ætla uppá bústaðaveg (Frá hvaða götu sem er.),
er bent á að halda sér á ákveðinni akgrein.

Semsagt, getum við ekki gert samkeppnishæf gps kort við íslenku garmin kortin 
hvað varðar ýmsa aukafídusa ?


Kv.
Kalli
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to