Hæ.
Var að hringja í Fasteignaskrá og vildi forvitnast hvort við gætum
fengið GPS hnit úr staðfangaskrá fyrir allt landið en fékk það svar að
það myndi kosta um 200 þúsund krónur. Þess vegna datt mér í hug hvort
við gætum reynt að fá gögnin ókeypis og án ósanngjarnra skilyrða. Ein
leið sem mér datt í hug væri að biðja formlega um afhendingu gagnanna án
endurgjalds (eða gegn sanngjörnu úrvinnslugjaldi). Ef beiðninni yrði
neitað gætum við sent stjórnsýslukæru í von um að hún yrði samþykkt. Það
er engin trygging fyrir árangri en mér finnst að við ættum allavega að
reyna.
Kosturinn yrði sá að við fengjum GPS hnit fyrir (nær) öll hús á landinu
sem gæti sparað okkur mikla vinnu í framtíðinni, gætum áætlað
staðsetningu ómældra gatna (betur) og flýtt fyrir því að fólk noti OSM
Garmin kortið frekar en það keypta.
--
Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected])
s. 863-9900
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is