On 6.12.2010 16:28, Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote:
2010/12/6 Svavar Kjarrval<[email protected]>:
Var að hringja í Fasteignaskrá og vildi forvitnast hvort við gætum fengið
GPS hnit úr staðfangaskrá fyrir allt landið en fékk það svar að það myndi
kosta um 200 þúsund krónur. Þess vegna datt mér í hug hvort við gætum reynt
að fá gögnin ókeypis og án ósanngjarnra skilyrða. Ein leið sem mér datt í
hug væri að biðja formlega um afhendingu gagnanna án endurgjalds (eða gegn
sanngjörnu úrvinnslugjaldi). Ef beiðninni yrði neitað gætum við sent
stjórnsýslukæru í von um að hún yrði samþykkt. Það er engin trygging fyrir
árangri en mér finnst að við ættum allavega að reyna.
Hljómar vel. Ef við myndum borga fyrir þessi gögn í dag (þ.e. þessar
200.000 kr) myndu gögnin vera samhæf OSM skilmálunum. Þ.e. er þetta
eingöngu úrvinnslugjald, eða er þetta afnotagjald fyrir gögn háð
ákveðnum skilmálum?
Gjaldskráin er skv. reglugerð 1174/2008
(http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=9a96cbe7-4c5c-45eb-a905-da409e3d8c93)
og myndi verðið vera í samræmi við 15. gr. Ég sé allavega ekkert sem
bendir til þess að þetta sé afnotagjald. Hins vegar er þetta ekki
samhæft OSM skilmálunum þar sem 21. gr. nefnir að gera þarf samning við
Fasteignaskrá Íslands um endursölu upplýsinga.
Kosturinn yrði sá að við fengjum GPS hnit fyrir (nær) öll hús á landinu sem
gæti sparað okkur mikla vinnu í framtíðinni, gætum áætlað staðsetningu
ómældra gatna (betur) og flýtt fyrir því að fólk noti OSM Garmin kortið
frekar en það keypta.
Það væri frábært að fá þessi hnit. Það var svipað import á húsnúmerum
í Færeyjum sem hefur hjálpað mikið til.
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is