Sæll póstlisti.

Er búinn að yfirfara LUKR gögnin í góðum hluta Reykjavíkur og ég held að það sé ekki mikið eftir af svæðum í Reykjavík sem ég þekki nógu vel. Því vona ég að einhver gæti tekið við verkinu og reddað öðrum hverfum. Þau hverfi sem eru búin að því leiti: Seljahverfi, Breiðholt, Ártúnsholt, Árbær, Bryggjuhverfi, Grafarvogur, Norðlingaholt og Grafarholt. Þekki þau seinustu tvö ekki nógu vel til að fullklára þau svo þau þafnast yfirferðar.Það gæti verið í framtíðinni að ég taki eitt og eitt svæði fyrir en ég vona að einhver annar geti tekið frá tíma og hafið yfirferð á öðrum svæðum.

Fyrir forvitna er áherslan mín farin yfir í útlínur húsa, sbr. Breiðholtið (http://www.openstreetmap.org/?lat=64.1053&lon=-21.81332&zoom=15&layers=M) og beiðnir til bæja um gögn sem gagnast OSM og síðan að vinna með þau gögn. Læt vita þegar ég fæ gögn í hendurnar en ég hef haft samband við þessa bæi (hingað til):
Hveragerði
Árborg
Akranes
Borgarbyggð
Kópavogur
Mosfellsbær

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to