Hæ.

Þetta vandamál er hálfgert mér að kenna þar sem ég hef verið að stroka út stíga sem tengjast við enda gatna við yfirferð á LUKR stígum og það veldur greinilega vandræðum fyrir leiðarvélina þar sem tengingin er rofin við enda gatna.

Ég skal fara í að laga þetta fyrir hverfin sem ég hef unnið með. Hjólavefsjáin er samt að nota gömul gögn eins og sjá má af þeirri staðreynd að Grafarvogurinn og 104 Reykjavík eru löngu búin hvað stígana varðar en samt koma þeir ekki fram þar. Ef vandamálið er einnig þar er þetta einnig almennt vandamál með leiðarvélina og ekki bara í því sem ég gerði.

Gæturðu annars komið með dæmi svo við getum vandamálagreint þetta betur?

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

On 09/05/11 15:12, Morten Lange wrote:
Sæl

Ég hefði át að kveikja á perunni fyrr, en átakið Hjólað í vinnuna ytir eftir mér að skoða betur hvernig hjolacefsja.is virkar.
"Rötunarvélin" virkar núna nánast ekki, amk í Reylkjavík.
Kerfið sér að stígar séu eylönd, enda eru stíganir skilgreindir þannig í LUKR.

Mér fyndist betra að hafa bæði inni, þangað til búið séw að tengja saman LUKR-stígana. Nema mjög veigamikill rök hniga að því að gera það ekki. ( Eða ef vænta megi góða tengingu stíga, og gangstétta innan fárra daga )

--
Regards / Kvedja
Morten Lange, Reykjavík


_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to