Hæ. Enn einn pósturinn í dag. Vona að þið fyrirgefið mér það.
Hafið þið skoðað kortið sem er á gpsmap.is? Hann gefur það bara út sem Garmin img skrá svo ég hef ekki getað skoðað það enn. Kortið er „algjörlega ókeypis“ en samt áskilur hann sér allan höfundarétt sem þýðir að við getum ekki notað þau gögn til að setja inn á OSM. Hefur einhver sett sig í samband við hann og athugað hvort hann viti af því starfi sem OSM er að rækja? Það virðist vera nokkur tvítekning að tveir aðilar starfi í þeim tilgangi að útvega ókeypis kort þó við förum enn lengra og gerum kortin frjálsari. Veit einhver hvaða data sources (í. gagnalindir) hann notar til að gera kortin? Það væri annars forvitnilegt að taka saman stats um OSM Ísland og sjá hvort þau séu samkeppnishæf við gpsmap.is. Sem dæmi hversu mörg POI eru á Íslandi eru skráð á OSM og svoleiðis. - Svavar Kjarrval
signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
