„Laugaveginn eða Hverfisgötuna“, átti þetta að vera. Heilinn minn hefur hoppað yfir þennan bút þegar ég las póstinn yfir.
- Svavar On 28/07/12 15:15, Svavar Kjarrval wrote: > Hæ. > > Í gær fór ég í POI söfnun í miðbæ Hafnarfjarðar, vopnaður eyðublaðinu. > Gangan tók u.þ.b. 2 klst. 45 mín en hins vegar náði ég eingöngu 31 stað. > Þetta gerir að meðaltali um 5 mínútur á hvern stað. Þið getið haft þetta > í huga ef þið ætlið í POI söfnun með þessum hætti. > > Reynslan mín var á þá leið að flestir voru hjálpsamir þótt þeir vissu > ekki fyrir hvað þetta var. Ég nefndi alltaf að ég væri að safna > upplýsingum um verslanir á svæðinu en ekki að þetta væri fyrir > OpenStreetMap. Ég nefndi auðvitað OpenStreetMap ef þau spurðu fyrir > hvern þetta væri og fyrir hvað OSM stendur fyrir. Einstaka staðir voru > óhjálpsamir en ég náði þá upplýsingum sem voru fáanlegar með því að líta > í kringum mig. Ég held að eigandi einnar verslunarinnar hafi haldið að > ég væri frá ríkinu og að OSM væri cover story til að fá upplýsingar um > staðinn til að hanka hana á einhverju. Hún hafði ekki einu áhuga á að > vita hvaða upplýsingar ég vildi fá. > > Það gæti sparað tíma ef það væri þegar búið að safna einhverjum > upplýsingum um fyrirtækin áður eða í það minnsta staðsetja þau á korti > áður en lagt er af stað. Tók smá tíma hjá mér að merkja staðina inn á > réttum stað. Þá væri hægt að prenta út upplýsingar á blöð og biðja > eingöngu um þær upplýsingar sem á vantar og mögulega um yfirferð á þeim > upplýsingum sem liggja fyrir. Það hentar til dæmis sérstaklega fyrir > stóran hóp að úthluta (hálf)útfylltum blöðum og fólkið myndi eingöngu > fara í þær verslanir sem þeim var úthlutað, svo fólk sé ekki að hópast í > sömu verslanirnar og þar af leiðandi pirra starfsfólkið. Annar kostur er > sá að sumir staðir hafa fleiri gagnlegar upplýsingar sem hægt er að afla > eins og aðgengi að Internetinu (matstaðir t.d.), hvort það megi > reykja(hótel t.d.), og svo framvegis, og það væri gott að geta spurt að > því um leið. > > Varðandi hjólastólaaðgengi tók ég eftir því að starfsfólk sagði oft að > það væri hjólastólaaðengi þrátt fyrir að staðlar myndu segja nei. Því > borgar sig ekki að treysta eingöngu á svör starfsfólks þegar spurt er um > téð aðgengi. Einnig tók ég eftir að það gekk betur að fá fólk til að > taka þátt ef maður sagðist vera með eyðublað með einföldum upplýsingum > og óskaði eftir hjálp við að fylla það út, í stað þess að óska eftir því > að spyrja spurninga um verslunina. > > Hver myndi til dæmis vilja hjálpa mér að fara um laugarveginn eða > hverfisgötuna og merkja verslanir og staði inn á kortið áður en við > förum í alvöru POI söfnun á því svæði? Við getum gert þetta eftir > skrifstofuvinnutíma ef það hentar fólki betur. Býst nú ekki við miklum > viðbrögðum eins og venjulega en það sakar varla að spyrja. > > Með kveðju, > Svavar Kjarrval
signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
