Hæ. Í gær fór ég í POI söfnun í miðbæ Hafnarfjarðar, vopnaður eyðublaðinu. Gangan tók u.þ.b. 2 klst. 45 mín en hins vegar náði ég eingöngu 31 stað. Þetta gerir að meðaltali um 5 mínútur á hvern stað. Þið getið haft þetta í huga ef þið ætlið í POI söfnun með þessum hætti.
Reynslan mín var á þá leið að flestir voru hjálpsamir þótt þeir vissu ekki fyrir hvað þetta var. Ég nefndi alltaf að ég væri að safna upplýsingum um verslanir á svæðinu en ekki að þetta væri fyrir OpenStreetMap. Ég nefndi auðvitað OpenStreetMap ef þau spurðu fyrir hvern þetta væri og fyrir hvað OSM stendur fyrir. Einstaka staðir voru óhjálpsamir en ég náði þá upplýsingum sem voru fáanlegar með því að líta í kringum mig. Ég held að eigandi einnar verslunarinnar hafi haldið að ég væri frá ríkinu og að OSM væri cover story til að fá upplýsingar um staðinn til að hanka hana á einhverju. Hún hafði ekki einu áhuga á að vita hvaða upplýsingar ég vildi fá. Það gæti sparað tíma ef það væri þegar búið að safna einhverjum upplýsingum um fyrirtækin áður eða í það minnsta staðsetja þau á korti áður en lagt er af stað. Tók smá tíma hjá mér að merkja staðina inn á réttum stað. Þá væri hægt að prenta út upplýsingar á blöð og biðja eingöngu um þær upplýsingar sem á vantar og mögulega um yfirferð á þeim upplýsingum sem liggja fyrir. Það hentar til dæmis sérstaklega fyrir stóran hóp að úthluta (hálf)útfylltum blöðum og fólkið myndi eingöngu fara í þær verslanir sem þeim var úthlutað, svo fólk sé ekki að hópast í sömu verslanirnar og þar af leiðandi pirra starfsfólkið. Annar kostur er sá að sumir staðir hafa fleiri gagnlegar upplýsingar sem hægt er að afla eins og aðgengi að Internetinu (matstaðir t.d.), hvort það megi reykja(hótel t.d.), og svo framvegis, og það væri gott að geta spurt að því um leið. Varðandi hjólastólaaðgengi tók ég eftir því að starfsfólk sagði oft að það væri hjólastólaaðengi þrátt fyrir að staðlar myndu segja nei. Því borgar sig ekki að treysta eingöngu á svör starfsfólks þegar spurt er um téð aðgengi. Einnig tók ég eftir að það gekk betur að fá fólk til að taka þátt ef maður sagðist vera með eyðublað með einföldum upplýsingum og óskaði eftir hjálp við að fylla það út, í stað þess að óska eftir því að spyrja spurninga um verslunina. Hver myndi til dæmis vilja hjálpa mér að fara um laugarveginn eða hverfisgötuna og merkja verslanir og staði inn á kortið áður en við förum í alvöru POI söfnun á því svæði? Við getum gert þetta eftir skrifstofuvinnutíma ef það hentar fólki betur. Býst nú ekki við miklum viðbrögðum eins og venjulega en það sakar varla að spyrja. Með kveðju, Svavar Kjarrval
signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
