Sæl veriði,

Ég hjálpaði Björgvin á sínum tíma að koma inn hnitum á öllum biðstöðvum
strætó, en síðan þá hafa bæst við nokkrar nýjar leiðir. Í Hafnarfirðinum
hafa bæst við leiðir 43 og 44, og í Grafarvogi leið 31. Ég er að halda úti
óháðri síðu, http://gulur.is, og mér þætti gaman að geta bætt þessum leiðum
við þar. Hefur einhver ykkar tök á að safna gögnum um biðstöðvarnar sem
vantar fyrir þessar leiðir?


kær kveðja,
Guðmundur Bjarni
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to