Sæl öll,
Þessu tengt, þá hef ég verið að dunda mér við að bæta inn langleiðum strætó, 51 til Hafnar í Hornafirði og 57 til Akureyrar. Á þessum leiðum vantar nákvæmari upplýsingar um staðsetningu flestra biðstöðva. Á norðurleiðinni setti ég inn biðstöðvar eftir því sem mér þótti líklegast og rökréttast út frá eigin þekkingu á staðháttum, en það þarf að gera þetta nákvæmara, annað hvort með upplýsingum frá Strætó bs. eða með því að einhver sem ferðast með vögnunum þessar leiðir punkti það hjá sér hvar nákvæmlega vagnarnir stoppa.

kv. Bjarki

On 7.9.2012 14:42, Guðmundur Bjarni Ólafsson wrote:
Sæl veriði,

Ég hjálpaði Björgvin á sínum tíma að koma inn hnitum á öllum biðstöðvum strætó, en síðan þá hafa bæst við nokkrar nýjar leiðir. Í Hafnarfirðinum hafa bæst við leiðir 43 og 44, og í Grafarvogi leið 31. Ég er að halda úti óháðri síðu, http://gulur.is, og mér þætti gaman að geta bætt þessum leiðum við þar. Hefur einhver ykkar tök á að safna gögnum um biðstöðvarnar sem vantar fyrir þessar leiðir?


kær kveðja,
Guðmundur Bjarni


_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to