Götuskráin er á csv formi svo ef þú kannt smá python þá geturðu notað scriptið sem ég bjó til fyrir strætóstoppistöðvarnar sem grunn: https://github.com/nifgraup/straeto-utilities/blob/master/csv2osm.py
Ég notaði JOSM til "upload-a" .osm skránni sem cvs2osm.py bjó til. kv. Björgvin 2012/10/1 Svavar Kjarrval <[email protected]>: > Hæ. > > Hringdi í Kristínu Birnu hjá Íslandspósti, þeirri sömu og afgreiddi > málið með póstnúmeraskrána, og spurði hana hvort við gætum fengið hnitin > fyrir alla póstkassa á landinu. Póstkassarnir eru merktir inn á > póstappið svo ég vildi forvitnast hvort ég gæti fengið þau hnit. Hún > ætlar að athuga málið. > > Það varð smá vandræðalegt þegar hún spurði mig varðandi nýtingu okkar á > póstnúmeraskránni. Sérstaklega þar sem við erum ekki enn byrjaðir að > sníða og keyra scriptið sem sér um að setja þær upplýsingar inn og > viðhalda þeim. Í sjálfu sér höfum við ekki notað þær upplýsingar að > neinu marki og það er liðinn dágóður tími. Sérstaklega þegar nær öll > göturelation í Hafnarfirði eru nú þegar með viðeigandi merkingu. Þetta > eru líka grunnupplýsingar og við hljótum að geta sett þetta í gang sem > fyrst. Myndi gera það sjálfur ef ég kynni að gera svona plugin í JOSM. > > Er einhver hér sem getur tekið að sér að gera þetta script? Ég get alveg > séð um að keyra það reglulega. > > - Svavar Kjarrval > > _______________________________________________ > Talk-is mailing list > [email protected] > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is > _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
