Hæ.

Bristol á Englandi?

En annars fæ ég þetta til að virka á openrouteservice.org í Reykjavík
fyrir fótgangandi og hjólandi. Hér er hjóladæmi í Breiðholtinu þar sem
búið var að tengja þveranir á sínum tíma:
http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.8173057,64.1006776&end=-21.8241862,64.1000975&pref=Bicycle&lang=en&noMotorways=false&noTollways=false

Leiðin gæti þó orðið styttri með meiri gögnum á svæðinu en hér er
greinilegt að beintengdu stígarnir eru nýttir eftir því sem kostur er.

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

On 16/08/14 01:06, arni...@gmail.com wrote:
> Það sem mér finnst athyglisvert með gögnin frá t.d. Bristol er að
> routing virkar þrátt fyrir að hvorki gangstéttir né þveranir séu
> skráðar. Hversvegna virkar það þar en ekki hjá okkur? Erum við að gera
> málið alltof flókið? Er hægt að skýra þennan mun?
>
> Kveðja
> Árni Davíðsson
>
> On 15.8.2014, at 22:11, Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is
> <mailto:sva...@kjarrval.is>> wrote:
>
>> Hæ.
>>
>> Gallinn við stígagögnin frá Reykjavíkurborg er að þau eru frekar
>> teiknuð upp á útlitið en routing. Fyrir okkur var þetta auðvitað ekki
>> ákjósanlegasta staðan. Við fengum hins vegar nokkuð tæmandi safn yfir
>> stíga, jafnvel stíga sem við myndum líklegast ekki fá af loftmyndunum
>> einum saman. Hvað varðar routing gæti þetta verið bjarnargreiði en
>> nokkuð góður greiði þegar kemur að því að vita hvar stígar eru og
>> hvar þeir liggja. Með Laugaveginn tek ég þetta algerlega á mig,
>> sérstaklega þar sem ég á heima þar rétt hjá og hefði auðvitað átt að
>> hafa klárað þetta þar fyrir löngu.
>>
>> Okkar vantar smá átak til þess að skrá betur gangbrautir og aðrar
>> þveranir yfir götur. Tók sjálfur einhver þannig svæði á sínum tíma en
>> hef því miður fært áhersluna annað innan OSM. Hef samt tekið nokkuð
>> margar GPS taggaðar ljósmyndir af slíkum þverunum í einhverjum
>> gönguferðanna sem ég hef farið. Ef einhver hefur áhuga á að skrá
>> þetta í massavís, þá get ég tekið þær myndir saman og sent
>> viðkomandi. Margar þverananna sem myndir eru af gætu þó verið
>> augljósar út frá loftmyndum.
>>
>> Hvaða svæði finnst ykkur að ættu að vera í forgangi þegar bæta á við
>> þessum tengingum?
>>
>> Með kveðju,
>> Svavar Kjarrval
>>
>> On 11/08/14 16:26, Arni Davidsson wrote:
>>> Sæl
>>>
>>> Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega á
>>> íslensku.
>>>
>>> Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir gangandi
>>> og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open street map. Ástæðan
>>> er að hluta til innfærsla á gögnum yfir stíga frá sveitarfélögunum
>>> því í þeim gögnum virðast stígar oft ekki tengdir yfir götur né við
>>> götu. Þannig virkar leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru
>>> einfaldlega ekki tengdir. Það er fyrirsjáanlegt að það er talsverð
>>> vinna að tengja stígana. Sjá t.d. það sem gerist hér að neðan í
>>> ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap og í borgarvefsjá:
>>>
>>>

>>> http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
>>> http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
>>>
>>> Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki verið
>>> hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en spurningin er
>>> hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér í að tengja stíga við
>>> götur og yfir götur þar sem um þverun er að ræða. Eins og þið sjáið
>>> í Hátúni er fullt af þverunum og meira að segja þveranir á
>>> gangbrautarljósum á Laugavegi koma ekki fram í Openstreetmap.
>>>
>>> Einhverjar snjalla hugmyndir?
>>>
>>> kveðja
>>> Árni Davíðsson
>>>
>>>
>>>
>>> -- 
>>> Árni Davíðsson
>>> arni...@gmail.com <mailto:arni...@gmail.com>
>>>
>>>
>>> _______________________________________________
>>> Talk-is mailing list
>>> Talk-is@openstreetmap.org
>>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is@openstreetmap.org <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is@openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Attachment: signature.asc
Description: OpenPGP digital signature

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to