Hæ.

Ef við þekkjum fólk sem býr rétt hjá og gæti án mikilla vandræða skráð GPS hnit gætum við beðið það um að fara í smá verkefni. Persónulega myndi ég mæla með því að taka hnit fyrir hvert horn, og síðan væri hægt að skrá viðkomandi ærslabelg sem einn punkt á milli þessara horna eða sem eitt svæði (fer eftir gæðum hnitanna og nennu). Sé þessi kostur ekki fyrir hendi, þá væri í lagi mín vegna að setja inn grófa staðsetningu á meðan hún er ekki algert gisk.

Ein „dummy-leið“ í þessum efnum í snjallsímum er að biðja fólk um að setja upp forrit eins og „GPS Status & Toolbox“ (https://play.google.com/store/apps/details?id=com.eclipsim.gpsstatus2), hafa það í forgrunni þar til skekkjumörkin eru komin niður í fáeina metra (helst ekki fleiri en 5). Síðan myndi viðkomandi fara að einu horninu, taka skjáskot, fara að næsta horni, taka skjáskot, og svo áfram þar til öll hornin eru komin. Síðan gæti viðkomandi annað hvort skráð hnitin niður og sent, eða einfaldlega sent skjáskotin yfir. Þetta gæti gagnast fyrir ærslabelgi í sveitarfélögum sem hafa ekki virka OSM notendur.

(Einnig hægt, á eigin ábyrgð, að taka slíkt skjáskot á meðan viðkomandi er á miðjum ærslabelgnum.)

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

On 6.8.2020 07:03, Sveinn í Felli wrote:
Staðsetning ærslabelgjanna á belgir.eggald.in er oft ekki mjög nákvvæm, altént þeirra sem ég kannast við hér norðanlands. Hvað er raunhæft að miða við, vitandi að tengd leiksvæði eru endurhönnuð* reglulega?

Reyndar er ekki hlaupið að því að færa þessa belgi, það er kostnaður sem mörg smærri sveitarfélög myndu reyna eftir megni að forðast.

Ætti að láta merkingu belgjanna tengjast viðkomandi leiksvæði án þess að eltast við nákvæma teikningu, eða hafa þetta sem næst raunstaðsetningu í dag?

bkv,
Sveinn í Felli

*: Sundlaugargaðurinn á Akureyri virðist vera stokkaður upp á sirka 15-20 ára fresti.

Þann 31.7.2020 21:38, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:
Sæl verið þið

Einhver er búinn að búa til ærslabelgjakort eftir minni - gögnin eru ekki til staðar á OSM að mestu
og ég er því að bæta við þeim sem ég veit um.

Fyrir belginn sjálfann notum við playground=cushion (ég set punkt) og hann er oftast innan svæðis
sem er leisure=playground

Ærslabelgjakortið: https://belgir.eggald.in (https://belgir.eggald.in/)

Leikvellir https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:playground (https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:playground)


_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is



_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to