Vonandi get ég áframsent frá þessu netfangi þó að það sé ekki skráð á
listann.

Mig langaði að senda þessar umræður okkar Þórarins á þessa tvo lista
(KDE-isl og RGLUG) rétt til að heyra hljóðið í mönnum og fá staðfestingu á
því að við Þórarinn séum af göflum gengnir fyrir að láta okkur detta í hug
að svona lagað gæti nokkurntíma gerst.

Forsaga málsins er s.s. sú að ég, í einhverju kæruleysiskasti, henti inn
athugasemd á frétt kde.org þar sem verið var að biðja um hugmyndir að stað
fyrir næstu aKademy ráðstefnu KDE manna. Þar mælti ég með Íslandi sem kosti
án þess þó að lofa einu né neinu að sjálfsögðu. Þetta er þó eitthvað sem ég
hefði vægast sagt mikinn áhuga á að sjá gerast á Íslandi einhverntíma. Það
þarf kannski ekki að vera 2006 en einhverntíma...

Okkur Þórarni langaði að heyra viðbrögð ykkar við þessari hugmynd og hvort
almennur vilji væri fyrir að vinna að því að krækja í eina svona ráðstefnu
hingað til lands á næstu árum?

kv. Stefán Freyr.

---------- Forwarded message ----------
From: Thorarinn Einarsson <[EMAIL PROTECTED]>
Date: Dec 1, 2005 9:45 PM
Subject: RE: aKademy á Íslandi
To: Stefán Freyr Stefánsson <[EMAIL PROTECTED]>

Já, það er í góðu lagi.
-Þórarinn

 ------------------------------
*From:* Stefán Freyr Stefánsson [mailto:[EMAIL PROTECTED]
*Sent:* Thursday, December 01, 2005 4:43 PM
*To:* Thorarinn Einarsson
*Subject:* Re: aKademy á Íslandi

Er þér þá sama ef ég áframsendi bara allar þessar umræður okkar 'verbatim'
inn á kde og rglug listana?

kv. Stefán Freyr?

On 12/1/05, Thorarinn Einarsson <[EMAIL PROTECTED]> wrote:
>
> Endilega henda fyrirspurn á listana en það er meira viðeigandi að þú gerir
> það þar sem ég bý ekki á landinu :-)
>
> Nokkrar spurningar...
> * hvar væri hægt að fá ókeypis húsnæði með
>   - breiðum aðgangi að netinu
>   - aðstöðu fyrir a.m.k. 100 forritara í senn
>   - a.m.k. 3 fyrirlestrasali með 40-50 sætum
>   - einn stóran fyrirlestrasal, 200-300 sæti
>   - matsölustaði í göngufæri (mætti líka íhuga aðkeyptar samlokur o.s.frv.,
> þ.e.a.s. láta bjóða í sköffun á mat)
>   - strætóstopp í nágr.
>   - ódýra gistiaðstöðu í nágr.
> * hvar væri hægt að fá lánaðar 50 eða fleiri fartölvur með Linux, eða sem
> má setja Linux á?
> * væri líka hægt að fá einhverjar borðtölvur með Linux lánaðar?
> * hvaða fyrirtæki á Íslandi myndu vilja styrkja þennan atburð?
> * hvað væri sérstakt hægt að gera fyrir fjöldann á Íslandi (sbr Bláa Lónið
> o.s.frv.?)  Í Málaga var farið með alla í ókeypis ferð á ströndina sem
> Troll Tech og kannski aðrir borguðu fyrir.  Novell hélt líka eina veislu í
> upphafi ráðstefnunnar.
>
> Antonio Larrosa Jiménez ([EMAIL PROTECTED] ) stóð sig mjög vel sem
> skipuleggjandi í Málaga.  Hann gæti sennilega gefið góðar ráðleggingar.
> Mjög fínn náungi.
>
> -Þórarinn
>
>
>  ------------------------------
> *From:* Stefán Freyr Stefánsson [mailto:[EMAIL PROTECTED]
> *Sent:* Thursday, December 01, 2005 3:32 PM
> *To:* Thorarinn Einarsson
> *Subject:* Re: aKademy á Íslandi
>
>  Hehe... það ert nú reyndar bara þú ;o)
>
> En spurning hvort við ættum að henda umræðunni inn á KDE-isl listann og
> jafnvel RGLUG og heyra hljóðið í mönnum þar?
>
> kv. Stefán Freyr
>
> On 12/1/05, Thorarinn Einarsson <[EMAIL PROTECTED]> wrote:
> >
> > Já, pottþétt að huga að þessu til framtíðar.
> > Það koma svona 200-300 manns á aKademy en það má kannski gera ráð fyrir
> > að það aukist smávegis á hverju ári, ekki mikið samt.
> > Það var ansi góð fyrirlestradagskrá í ár, mun betri en í fyrra t.d.
> > (allavega það sem ég sá).  Ég sé eftir að hafa ekki farið á fleiri en ég var
> > að taka viðtöl "on camera" þannig að ég hafði takmarkaðan tíma.
> > Hvað, hafa margir sent þér póst um þetta?
> > Kv.
> > -Þórarinn
> >
> >  ------------------------------
> > *From:* Stefán Freyr Stefánsson [mailto:[EMAIL PROTECTED]
> > *Sent:* Thursday, December 01, 2005 3:02 PM
> > *To:* Thorarinn Einarsson
> > *Subject:* Re: aKademy á Íslandi
> >
> >  Úff ég hefði betur sent þetta inn undir dulnefni ;o)
> >
> > Svona í alvörunni þá þætti mér svaka fjör að svona lagað yrði haldið hér
> > á landi en ég er langt frá því að vera rétti maðurinn til að skipuleggja
> > þetta. Fyrir því eru þrjár ástæður:
> > 1) alltof mikið að gera (en þessi ástæða gildir undantekningalítið um
> > alla þannig að hún núllast út líklega)
> > 2) Ég hef aldrei komið að skipulagningu á neinu sem mætti með nokkru
> > kallast "ráðstefna"
> > 3) Ég hef aldrei komið á aKademy og veit lítið um hvað þar fer fram nema
> > bjórdrykkja og kóðun (og kannski er fjórða ástæðan sú að ég hef í raun
> > aldrei kóðað neitt fyrir KDE, ég bara nota það).
> >
> > En ef mannskapur fyndist í þetta sem treysti sér til að axla ábyrgð á
> > skipulagi og slíku þá myndi ég glaður gera allt sem í mínu valdi stendur til
> > að hjálpa til. Ég hef til dæmis ágæt sambönd niðri í Háskólanum í Reykjavík
> > og það gæti vel hugsast að þau tækju vel í að skaffa aðstöðu fyrir svona
> > lagað (án þess náttúrulega að ég lofi neinu svona út í bláinn). Hvað koma
> > annars margir á svona (má eflaust draga 30% frá ef þetta yrði haldið hér
> > reyndar)?
> >
> > Annað sem manni dytti í hug er að reyna að fá blessuð flugfélögin til að
> > bjóða upp á góða díla gegn auglýsingu hjá þessum nördahóp. Eins gæti verið
> > hægt að betla einhverja styrki frá samtökum ferðaiðnaðar eða jafnvel
> > menntamálaráðuneyti eða einhverju slíku þó að ég myndi nú ekki vera mjög
> > bjartsýnn á að það kæmi neitt út úr slíku.
> >
> > En það væri gaman að hafa þessa hugmynd allavega á bak við eyrað jafnvel
> > þó að ekki yrði af þessu á næsta ári.
> >
> > kv. Stefán Freyr.
> >
> > On 12/1/05, Thorarinn Einarsson < [EMAIL PROTECTED]> wrote:
> > >
> > > Sæll,
> > > Ég sá tillöguna frá þér um KDE ráðstefnuna :-)  Góð hugmynd.  Ég er í
> > > BNA þannig að ég gæti orðið að takmörkuðu liði en ég hugsaði mikið út í
> > > þetta þegar ég var á aKademy í Malaga í sumar.  Ég held að þetta gæti 
> > > orðið
> > > auðvelt og vel heppnað á Íslandi.  Aðalmálið er hvað allt er dýrt heima
> > > fyrir fólk úr flestum öðrum löndum (nema kannski Noregi, Danmörku, 
> > > Svíþjóð,
> > > Bretlandi og Japan :-)  Spurning hvað er hægt að gera með gistingu og
> > > fæði?  Svo er auðvitað ekki ódýrt að fara til Íslands í ágúst.
> > > Kv.
> > > -Þórarinn
> > >
> >
> >
>


Attachments:
 + http://www.molar.is/listar/kde-isl//2005-12/8f741097/01.unnamed.html

- 8< - - -
Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/
Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn.
Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta.
- - - >8 -

Reply via email to