KDE 3.5.1 útgáfutilkynning
==============================

31. janúar 2006 - KDE verkefnið tilkynnir í dag um fáanleika KDE 3.5.1, 
viðhaldsútgáfu af öflugasta frjálsa skjáborðinu fyrir GNU/Linux og önnur UNIX 
kerfi. KDE 3.5.1 kemur með grunn-skjáborðinu ásamt fjölda annara pakka (PIM, 
kerfisstjórnun, netforritum, kennsluleikjum, tólum, margmiðlun, leikjum, 
grafík, vefhönnun og meira). Margverðlaunuðu KDE forritin koma á yfir 63 
tungumálum. 

KDE, ásamt öllum forritum og söfnum þess, má nálgast endurgjaldslaust undir 
notkunarskilmálum Open Source. Það má nálgast kóðan og ýmsa keyrslupakka á 
http://www.is.kde.org/download. Einnig er hægt að panta geisladisk eða 
nálgast það hjá einhverri af dreifingunum sem koma út í dag.

Nánari lýsingu má finna á 
http://www.is.kde.org/announcements/announce-3.5.1.php


- 8< - - -
Heimasíða þessa póstlista er: http://www.molar.is/listar/kde-isl/
Þar eru leiðbeiningar um áskrift að listanum og hugsanlega bréfasafn.
Á http://www.molar.is/ er ókeypis íslensk póstlistaþjónusta.
- - - >8 -

Reply via email to