Hér er mín tillaga fyrir vörpun á tögunum í osm format:
https://github.com/nifgraup/ogr2osm-lukr-import/blob/master/translations/lukr.py
Endilega koma með athugasemdir.
Ég á í vandræðum með hugtökin aðalstígur og tengistígur, einhver sem
útskýrt þau betur og fundið gott OSM tag fyrir þau?
Vörpunin byggir á tölvupósti sem ég fékk sendan með útskýringum, læt
þær fylgja hér að neðan:
Stigaflokkur = skv. gamalli flokkun frá borgarskipulaginu,
1 = Aðalstígur
2 = Tengistígur
3 = Aðrir stígar
4 = Malarstígur
Breidd = Breidd í metrum
Teikninr = teikningarnúmer, er ekki haldið við lengur og skiptir ekki máli
Astand = Ástand skv. gömlu ástandsmati, er ekki haldið við lengur og
skiptir ekki máli
Ar_Lagt = Árið sem stígurinn er lagður
Ar_Lagf = Lagfæringarár skv. gömlu ástandsmati, er ekki haldið við
lengur og skiptir ekki máli
Teg = Tegnund stígs
1 = Stígur
2 = Stétt
3 = Hitaveitustokkur
4 = Malarstígur
Flokkur = Flokkur stígs
215 = miðlína stígs
217 = miðlína stéttar
Rutt = Forgangsröð í snjóhreinsun
11 er hæstur forgangur svo 1 svo 2 osfrv.
Ar_adg = Ár sem gönguleið var lagfærð með tilliti til fatlaðra og
hjólreiðamanna (niðurtektir við götur osfrv.). Tók aðallega til átaks
sem stóð yfir í nokkur ár.
Gera má ráð fyrir að allar stéttar og stígar sem lagðar hafa
verið undanfarin 10 ár séu í lagi. (fyrir utan þar sem um tröppur er
að ræða)
Utbsv = Útboðssvæði - skiptir engu máli - einungis fyrir rekstur hér
Rutt_breidd = Ruðningsbreidd - tæknimál bara fyrir þá sem sjá um snjóhreinsun.
Dags_inn = Dagsetning þegar viðkomandi fitja var sett í gagnagrunninn
Notandi = Sá sem setti viðkomandi fitju inn
SVF = Sveitarfélagsnúmer (0000 = Reykjavík)
Uppr = Uppruni gagna
1 = Hönnunargögn
2 = Landmælt
3 = Myndmælt
4 = Hnitað
5 = Skannað/Vigrað
8 = Riss
9 = Annað
Nakv = Nákvæmni í metrum.
kv.
Björgvin Ragnarsson
2010/11/15 Björgvin Ragnarsson <[email protected]>:
>> Við ættum þó að byrja á að taka afstöðu til þess hvað við ætlum að nýta af
>> þessum upplýsingum. Þegar það er komið á hreint mætti fjarlæga þau tög sem
>> við ætlum ekki að nota og þannig auðvelda handavinnuna.
>>
>
> Ég og Svavar settumst niður á sunnudag og fórum yfir töggin og völdum
> úr það sem gæti nýst, sjá hér: http://piratepad.net/lukr
>
>> Jafnvel er spurning hvort við ættum ekki að reyna að breyta LUKR tögunum
>> sjálfvirkt í OSM compatible tög. Það myndi flýta mikið fyrir við
>> innsetninguna. Er einhver búin að skoða þetta með það í huga? T.d. hvernig
>> STIGAFLOKK tagið samræmist highway=cycleway/footway/path o.s.frv.?
>>
>
> Ég er að setja saman skriftu sem gerir akkúrat þetta:
> https://github.com/nifgraup/ogr2osm-lukr-import/blob/master/translations/lukr.py
>
> Björgvin Ragnarsson
>
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is