Gerði nokkrar stikkprufur og þetta lítur ágætlega út. Held að það séu
engin mótmæli frá mér fyrir utan að setja lukr:raw inn á OSM.
Vildi minni á að á ráðstefnu FSFÍ komust við að því að sumir
samliggjandi stígar eru ekki tengdir. Við þurfum væntanlega að laga það
handvirkt þegar gögnin eru komin inn á OSM. Hver er annars besta leiðin
til að gera það með sem minnstu nákvæmistapi vegna hreyfingu punktanna?
Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected])
s. 863-9900
On 6.12.2010 18:47, Björgvin Ragnarsson wrote:
Hér er lokatillaga mín að vörpun (ef enginn mótmælir):
https://github.com/nifgraup/ogr2osm-lukr-import/blob/master/translations/lukr.py
Hér er útkoman í OSM skrá, endilega skoðið það í JOSM með Bing í
bakgrunn:
http://www.nethal.net/action/download?ref=00E8F7CFA20EC3E3349DA1028994A2CB21
Allir stígar fá eftirfarandi merkingu:
source=lukr
source:date=2010-09-17
lukr:raw=ÖLL-UPPRUNALEGU-TÖGGIN
lukr:highway=footway (fjarlægið lukr: þegar búið er að yfirfara stíginn)
bicycle=yes
Til viðbótar eru þessi aukatögg:
width=X.XX í metrum á þeim sem hafa merkta breidd
séttir eru merktar surface=paved
malarstígar eru merktir surface=gravel
hitaveitustígar eru man_made=pipeline, location=overground og type=hot_water
Ég ætla núna að prófa að setja þetta inn í prófunargrunninn
dev.openstreetmap.org
2010/11/16 Arni Davidsson<[email protected]>:
Það er spurning hvort gera á greinarmun á stígaflokkum og hvort þá eigi að
gera það með viðbótartögum eins og "aðalstígur", "tengistígur",
"annarstígur".
Ég ákvað að sleppa þessari flokkun í bili en þar sem við höfum öll
upprunalegu töggin í lukr:raw getum við bætt þessu við síðar ef þurfa
þykir.
Mér sýnist víða vanta bicycle=yes tag á þeim stígum sem hafa verið merktir
sem "footway". Er kannski einhver landsstilling sem leyfir hjólreiðar á
footway á Íslandi?
Ég held að RideTheCity leyfi ekki hjólreiðar á highway:footway nema
einnig fylgi bicycle:yes. Aðrar hjólavefsjár gætu hegðað sér öðruvísi.
Staðan er í dag sú að það má hjóla á öllum stígum og gangstéttum nema
gangstéttinni á Laugaveginum.
Þá held ég að highway=footway og bicycle=yes eigi við um alla stígana.
Þessi tög eru líka í samræmi tögin sem potlatch2 vill nota fyrir
göngustíga sem má hjóla á.
Björgvin
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is