Hæ.

Um daginn fékk OSM leyfi til að rekja eftir loftmyndum í safni Bing. Hér á listanum var nefnt að myndir í fínum gæðum frá Loftmyndum væru þarna af Reykjavík. Ef einhver skyldi ekki hafa skoðað þetta nánar, þá eru einnig í boði loftmyndir í sömu gæðum af Seltjarnarnesi í heilu lagi. Í framhaldinu fór ég að spá hvort það væru fleiri bæjarfélög á Íslandi í samkomulaginu.

Þetta hefði getað verið nokkuð svalur póstur ef ég hefði fundið fleiri en svo var ekki. Við vitum allavega af Reykjavík og Seltjarnarnesi. Þó vil ég minna á að hverfi sem liggja að borgarmörkum Reykjavíkur eru í þessu að hluta til og nýtti ég meira að segja tækifærið um daginn og tók eins mikið og ég gat af Salahverfinu í Kópavogi.

--
Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected])
s. 863-9900


_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to