Ég er aðeins byrjaður að kortleggja Seltjarnarnesið eftir Bing myndunum.
Þetta eru fínar myndir en það virðist samt vera nokkurra metra skekkja í
þeim, og það sem verra er hún er breytileg eftir svæðum.  Hef lent í nokkrum
vandræðum á Seltjarnarnesinu vegna þessa.

Ég stefni að því að reyna að mæla út nokkra áberandi punkta á kortinu og
nota sem viðmiðunarpunkta fyrir frekari kortlagningu.  Reyndar ætti að vera
hægt að finna nokkra svona punkta í Flugupplýsingahandbókinni fyrir Ísland
(AIP Iceland).  T.d. ljósvitann á Perlunni, flugleiðsöguvitann á
Seltjarnarnes og eflaust einhverja fleiri.  Ég ætla að sjá hvort ég finni
ekki eitthvað sem getur gagnast okkur.  Sendi póst hingað inn ef ég finn
eitthvað.

Kv. Þórir Már


2010/12/11 Svavar Kjarrval <[email protected]>

> Hæ.
>
> Um daginn fékk OSM leyfi til að rekja eftir loftmyndum í safni Bing. Hér á
> listanum var nefnt að myndir í fínum gæðum frá Loftmyndum væru þarna af
> Reykjavík. Ef einhver skyldi ekki hafa skoðað þetta nánar, þá eru einnig í
> boði loftmyndir í sömu gæðum af Seltjarnarnesi í heilu lagi. Í framhaldinu
> fór ég að spá hvort það væru fleiri bæjarfélög á Íslandi í samkomulaginu.
>
> Þetta hefði getað verið nokkuð svalur póstur ef ég hefði fundið fleiri en
> svo var ekki. Við vitum allavega af Reykjavík og Seltjarnarnesi. Þó vil ég
> minna á að hverfi sem liggja að borgarmörkum Reykjavíkur eru í þessu að
> hluta til og nýtti ég meira að segja tækifærið um daginn og tók eins mikið
> og ég gat af Salahverfinu í Kópavogi.
>
> --
> Með kveðju / With regards,
> Svavar Kjarrval ([email protected])
> s. 863-9900
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> [email protected]
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to