Á síðu BIRK AD 2-1 í Flugmálahandbókinni (4. blaðsíðan í þessu pdf skjali: http://www.caa.is/media/PDF/AD_2_BIRK.pdf) er að finna lista með hnitum helstu hindrana (fyrir flug - Kirkjuturnar og þess háttar) í nágrenni Reykjavíkurflugvallar. Í fljótu bragði virðast mér þetta vera nákvæm og góð hnit, en þið skoðið þetta bara ef þið hafið áhuga.
Kv. Þórir Már 2010/12/11 Thorir Jonsson <[email protected]> > Ég er aðeins byrjaður að kortleggja Seltjarnarnesið eftir Bing myndunum. > Þetta eru fínar myndir en það virðist samt vera nokkurra metra skekkja í > þeim, og það sem verra er hún er breytileg eftir svæðum. Hef lent í nokkrum > vandræðum á Seltjarnarnesinu vegna þessa. > > Ég stefni að því að reyna að mæla út nokkra áberandi punkta á kortinu og > nota sem viðmiðunarpunkta fyrir frekari kortlagningu. Reyndar ætti að vera > hægt að finna nokkra svona punkta í Flugupplýsingahandbókinni fyrir Ísland > (AIP Iceland). T.d. ljósvitann á Perlunni, flugleiðsöguvitann á > Seltjarnarnes og eflaust einhverja fleiri. Ég ætla að sjá hvort ég finni > ekki eitthvað sem getur gagnast okkur. Sendi póst hingað inn ef ég finn > eitthvað. > > Kv. Þórir Már > > > 2010/12/11 Svavar Kjarrval <[email protected]> > > Hæ. >> >> Um daginn fékk OSM leyfi til að rekja eftir loftmyndum í safni Bing. Hér á >> listanum var nefnt að myndir í fínum gæðum frá Loftmyndum væru þarna af >> Reykjavík. Ef einhver skyldi ekki hafa skoðað þetta nánar, þá eru einnig í >> boði loftmyndir í sömu gæðum af Seltjarnarnesi í heilu lagi. Í framhaldinu >> fór ég að spá hvort það væru fleiri bæjarfélög á Íslandi í samkomulaginu. >> >> Þetta hefði getað verið nokkuð svalur póstur ef ég hefði fundið fleiri en >> svo var ekki. Við vitum allavega af Reykjavík og Seltjarnarnesi. Þó vil ég >> minna á að hverfi sem liggja að borgarmörkum Reykjavíkur eru í þessu að >> hluta til og nýtti ég meira að segja tækifærið um daginn og tók eins mikið >> og ég gat af Salahverfinu í Kópavogi. >> >> -- >> Með kveðju / With regards, >> Svavar Kjarrval ([email protected]) >> s. 863-9900 >> >> >> _______________________________________________ >> Talk-is mailing list >> [email protected] >> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is >> > >
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
