Mér finnst þetta verkefni sem Svavar nefnir frekar ómótað. Persónulega finnst mér að markmið okkar ættu ekki að snúast um það að búa til besta Garmin kortið af Íslandi heldur að safna kortaupplýsingum undir frjálsu leyfi til afnota fyrir hvern sem er. Garmin kortið sem Ævar heldur úti er bara dæmi um það hvernig nota má opin gögn á snjallan hátt.
Mig langar að koma með aðrar tillögur að verkefnum fyrir "Mapping party". Hugmyndir mínar eru flestar þess eðlis að hægt er að vinna þær úr tölvunni og því er ég að stinga upp á einhverskonar vinnustofu. 1. Þar sem að okkur hefur orðið nokkuð ágengt með gagnaöflun frá einkaaðilum þá finnst mér að við ættum að hittast og fara yfir það hvar er búð að hafa samband til að óska eftir gögnum, hvað hefur borið árangur og hvað ekki. Í framhaldinu að skrifa staðlað bréf sem væri svo sent á öll sveitarfélög og stofnanir sem gætu átt gögn sem ættu heima í OSM. Hér gæti eflaust hjálpað mjög mikið ef þau gögn sem okkur hafa þegar verið afhent væru komin inn í grunninn því það ætti að virka hvetjandi á aðrar stofnanir að skoða sín mál. 2. Svavar fékk nýlega afhent gögn frá Garðabæ sem innihalda kanta allra gatna og göngustíga í Garðabæ. Ég er að vinna í því að varpa þessum gögnum úr Reykjavíkurhnitum yfir í WGS84. Það þarf sennilega að teikna miðlínur allra gatna og göngustíga ofan á þau gögn sem hann fékk afhent. Þetta er eitthvað sem væri mikið einfaldara að gera í CAD forriti en í t.d. josm áður en gögnunum yrði importað. 3. Mér datt í hug að hægt væri að skrapa upp ótrúlega miklu magni af upplýsingum af heimasíðum þjónustufyrirtækja (bankar, bensínstöðvar, matvöruverslanir, póstkassar o.þ.h.) útbúa lista yfir þessa hluti og bæta þeim inn í OSM. Ef ég tek hraðbanka sem dæmi þá eru 17 hraðbankar í grunninum núna á meðan að nokkura mínútna leit á netinu skilar mér 244 hraðbönkum. Nú er ég ekki viss með höfundarrétt á gögnum sem eru fengin af heimasíðum fyrirtækja. Þurfum við að fá heimild hjá hverju fyrirtæki fyrir sig til að nota upplýsingar sem eru á heimasíðum þess? 4. Hugmyndin er að við myndum skilgreina gælusvæði OSM í Reykjavík. Þetta yrði vel skilgreint svæði sem t.d. ferðamenn hefðu áhuga á að skoða. Við mundum svo reyna að koma þessu svæði í þannig ástand í gagnagrunninum að við gætum verið stolt af. Þetta myndi fela í sér að teikna útlínur húsa eftir Bing loftmyndum, merkja bílastæði, POI, þjónustu og verslanir, samræma LUKR gögn og jafnvel fara út og safna húsnúmerum, hraðatakmörkunum og umferðarrétti (umferðarmerkjum). 5. Örnefni jökla. Þetta er verkefni sem ég hef áður minnst á<http://www.mail-archive.com/[email protected]/msg00090.html>. Ég var byrjaður á þessu sjálfur en hef ekki klárað. Ég var búinn að fá það á hreint að texti þessarar bókar er public domain. Það er hins vegar mikil vinna að fara í gegnum pdf skjalið og safna upp úr þessu hnitum þar sem að mismunandi gerðir örnefna (í notkun/söguleg/afbrigði o.þ.h.) er aðgreint með mismunandi letri. Svo eru náttúrulega tvö stór verkefni fyrir forritara. GNS<http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2008-December/000053.html>gögn og póstnúmeraskráin<http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2009-January/000108.html> . Hvernig lýst ykkur á þessar hugmyndir? Afsakið hvað þetta er orðið langt hjá mér. kv Daníel G 2010/12/12 Svavar Kjarrval <[email protected]> > Hæ. > > Mér datt í hug hvort við getum ekki farið að halda "mapping" party > bráðlega. Þetta yrði ekki venjulegt mapping party og er því í gæsalöppum. > Hugmyndin væri sú að þetta væri aðallega POI og húsnúmerasöfnun. Þegar við > höfum sett upplýsingarnar inn ættum við (vonandi) að vera með nógu nákvæma > skráningu til að skáka Íslandskorti Garmins á því svæði. Þetta ætti að vera > framkvæmanlegt bæði gangandi, hjólandi og á bíl. > > Við myndum dreifa okkur á fjölförnustu staðina í Reykjavík (og annars > staðar á landinu) og skrá niður helstu verslanir og áhugaverða staði. Þá > myndum við einnig skrá niður hvar húsnúmerin eru staðsett á götunum (frá > götuhorni til götuhorns) svo við getum sett það inn á OSM. Það væri einnig > hægt að gera þetta á stöðum sem er ekki búið að staðsetja fullkomlega. Þegar > við höfum fengið nóg getum við haft hitting á einhverjum þægilegum stað og > spjallað saman. > > Hvernig lýst ykkur á að hafa slíkt í desember? > > -- > Með kveðju / With regards, > Svavar Kjarrval ([email protected]) > s. 863-9900 > > > _______________________________________________ > Talk-is mailing list > [email protected] > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is >
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
