On 14.12.2010 23:30, Daníel Gunnarsson wrote:
Mér finnst þetta verkefni sem Svavar nefnir frekar ómótað. Persónulega
finnst mér að markmið okkar ættu ekki að snúast um það að búa til
besta Garmin kortið af Íslandi heldur að safna kortaupplýsingum undir
frjálsu leyfi til afnota fyrir hvern sem er. Garmin kortið sem Ævar
heldur úti er bara dæmi um það hvernig nota má opin gögn á snjallan hátt.
Að gera samkeppnishæft Garmin kort er ekki aðalmarkmið mitt en samt
markmið sem ég vil ná. Með því að gera Garmin kort og fá fólk til að
nota það, þá erum við að normalisera OpenStreetMap í augum almennings og
sýna fólki hvað opin gögn nýtast vel. Hluti af því er að sýna að opin
kort eins og OSM geta alveg verið jafngóð eða jafnvel betri en kort
einkaaðila. Þegar við höfum sýnt fram á gagnsemi slíkra opinna korta
ættum við að eiga auðveldar með að afla stuðnings til að fá frekari gögn.
Mig langar að koma með aðrar tillögur að verkefnum fyrir "Mapping
party". Hugmyndir mínar eru flestar þess eðlis að hægt er að vinna þær
úr tölvunni og því er ég að stinga upp á einhverskonar vinnustofu.
1. Þar sem að okkur hefur orðið nokkuð ágengt með gagnaöflun frá
einkaaðilum þá finnst mér að við ættum að hittast og fara yfir það
hvar er búð að hafa samband til að óska eftir gögnum, hvað hefur borið
árangur og hvað ekki. Í framhaldinu að skrifa staðlað bréf sem væri
svo sent á öll sveitarfélög og stofnanir sem gætu átt gögn sem ættu
heima í OSM. Hér gæti eflaust hjálpað mjög mikið ef þau gögn sem okkur
hafa þegar verið afhent væru komin inn í grunninn því það ætti að
virka hvetjandi á aðrar stofnanir að skoða sín mál.
Fylgjandi. Ég hafði einmitt slíkar áætlanir þegar búið væri að setja inn
gögn bæjarfélags eins og Hafnarfjörð. Því miður er það ekki að ganga
eins hratt og ég vildi.
2. Svavar fékk nýlega afhent gögn frá Garðabæ sem innihalda kanta
allra gatna og göngustíga í Garðabæ. Ég er að vinna í því að varpa
þessum gögnum úr Reykjavíkurhnitum yfir í WGS84. Það þarf sennilega að
teikna miðlínur allra gatna og göngustíga ofan á þau gögn sem hann
fékk afhent. Þetta er eitthvað sem væri mikið einfaldara að gera í CAD
forriti en í t.d. josm áður en gögnunum yrði importað.
Ég get alveg teiknað miðlínurnar í JOSM en ef það er einfaldara að
útfæra það í CAD forriti, þá er ég fylgjandi því.
3. Mér datt í hug að hægt væri að skrapa upp ótrúlega miklu magni af
upplýsingum af heimasíðum þjónustufyrirtækja (bankar, bensínstöðvar,
matvöruverslanir, póstkassar o.þ.h.) útbúa lista yfir þessa hluti og
bæta þeim inn í OSM. Ef ég tek hraðbanka sem dæmi þá eru 17 hraðbankar
í grunninum núna á meðan að nokkura mínútna leit á netinu skilar mér
244 hraðbönkum.
Nú er ég ekki viss með höfundarrétt á gögnum sem eru fengin af
heimasíðum fyrirtækja. Þurfum við að fá heimild hjá hverju fyrirtæki
fyrir sig til að nota upplýsingar sem eru á heimasíðum þess?
Höfundarrétturinn er óljós en það væri hægt að hafa samband við hvert
fyrirtæki og óska eftir leyfi til að nýta upplýsingarnar af vefsíðunni
og framtíðarbreytingum á listunum. Höfundalögin geta þess að gagnasöfn
geta verið háð höfundarétti og t.d. listi yfir hraðbanka gæti fallið
undir það. Ef fyrirtækin eru með notkunarskilmála á vefnum er betra að
fá sérstaka undanþágu vegna tiltekinna upplýsinga.
4. Hugmyndin er að við myndum skilgreina gælusvæði OSM í Reykjavík.
Þetta yrði vel skilgreint svæði sem t.d. ferðamenn hefðu áhuga á að
skoða. Við mundum svo reyna að koma þessu svæði í þannig ástand í
gagnagrunninum að við gætum verið stolt af. Þetta myndi fela í sér að
teikna útlínur húsa eftir Bing loftmyndum, merkja bílastæði, POI,
þjónustu og verslanir, samræma LUKR gögn og jafnvel fara út og safna
húsnúmerum, hraðatakmörkunum og umferðarrétti (umferðarmerkjum).
Þetta er nokkurn veginn sem hugmyndin mín snerist um: Fara út og safna
þessum upplýsingum.
5. Örnefni jökla. Þetta er verkefni sem ég hef áður minnst á
<http://www.mail-archive.com/[email protected]/msg00090.html>.
Ég var byrjaður á þessu sjálfur en hef ekki klárað. Ég var búinn að fá
það á hreint að texti þessarar bókar er public domain. Það er hins
vegar mikil vinna að fara í gegnum pdf skjalið og safna upp úr þessu
hnitum þar sem að mismunandi gerðir örnefna (í notkun/söguleg/afbrigði
o.þ.h.) er aðgreint með mismunandi letri.
Svo eru náttúrulega tvö stór verkefni fyrir forritara. GNS
<http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2008-December/000053.html>
gögn og póstnúmeraskráin
<http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2009-January/000108.html>.
Hvernig lýst ykkur á þessar hugmyndir?
Afsakið hvað þetta er orðið langt hjá mér.
kv Daníel G
2010/12/12 Svavar Kjarrval <[email protected]
<mailto:[email protected]>>
Hæ.
Mér datt í hug hvort við getum ekki farið að halda "mapping" party
bráðlega. Þetta yrði ekki venjulegt mapping party og er því í
gæsalöppum. Hugmyndin væri sú að þetta væri aðallega POI og
húsnúmerasöfnun. Þegar við höfum sett upplýsingarnar inn ættum við
(vonandi) að vera með nógu nákvæma skráningu til að skáka
Íslandskorti Garmins á því svæði. Þetta ætti að vera
framkvæmanlegt bæði gangandi, hjólandi og á bíl.
Við myndum dreifa okkur á fjölförnustu staðina í Reykjavík (og
annars staðar á landinu) og skrá niður helstu verslanir og
áhugaverða staði. Þá myndum við einnig skrá niður hvar húsnúmerin
eru staðsett á götunum (frá götuhorni til götuhorns) svo við getum
sett það inn á OSM. Það væri einnig hægt að gera þetta á stöðum
sem er ekki búið að staðsetja fullkomlega. Þegar við höfum fengið
nóg getum við haft hitting á einhverjum þægilegum stað og spjallað
saman.
Hvernig lýst ykkur á að hafa slíkt í desember?
--
Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected] <mailto:[email protected]>)
s. 863-9900
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected] <mailto:[email protected]>
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is