2012/8/19 Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is>: > Var að prófa landupplýsingagátt Landmælinga Íslands og sá að þeir bjóða upp > á WMS afhendingu sem þeir lista á vefsíðunni þeirra. Væri það þess virði að > fá leyfi til að nota þær fyrir OpenStreetMap? Þeir gefa upp slóðina á > færslunni sjálfri svo það getur varla verið um leyndarmál að ræða.
Ég og Þórir fórum á fund með LMÍ fyrir nokkrum árum í von um að fá að nota eitthvað að gögnunum þeirra. Í stuttu máli vildi forstjóri LMÍ ekki gefa okkur gögn undir frjálsu leyfi, ástæðan verandi: * Skv. lögum eru stofnanir eins og LMÍ með höfundarrétt á gögnum sem þær búa til. * Þeim er gert að standa undir sínum rekstri * Í tilfelli LMÍ er þetta gert með að selja aðgang að sínum landsupplýsingagrunni. * Það væri mögulegt fyrir þá að gefa okkur eitthvað undir frjálsu leyfi, en með fjármálaóvissuna (þetta var nokkrum mánuðum eftir hrunið ef ég man rétt) voru þeir ekki til í það. Það væri vel þess virði að spurja aftur, en bara þótt þeir séu með WMS þjón þýðir það ekki að við getum notað gögn af honum. _______________________________________________ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is