On 20/08/12 15:05, Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote: > 2012/8/20 Svavar Kjarrval <[email protected]>: >> On 20/08/12 13:12, Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote: >>> 2012/8/19 Svavar Kjarrval <[email protected]>: >>>> Var að prófa landupplýsingagátt Landmælinga Íslands og sá að þeir bjóða upp >>>> á WMS afhendingu sem þeir lista á vefsíðunni þeirra. Væri það þess virði að >>>> fá leyfi til að nota þær fyrir OpenStreetMap? Þeir gefa upp slóðina á >>>> færslunni sjálfri svo það getur varla verið um leyndarmál að ræða. >>> Ég og Þórir fórum á fund með LMÍ fyrir nokkrum árum í von um að fá að >>> nota eitthvað að gögnunum þeirra. >>> >>> Í stuttu máli vildi forstjóri LMÍ ekki gefa okkur gögn undir frjálsu >>> leyfi, ástæðan verandi: >>> >>> * Skv. lögum eru stofnanir eins og LMÍ með höfundarrétt á gögnum sem >>> þær búa til. >>> >>> * Þeim er gert að standa undir sínum rekstri >>> >>> * Í tilfelli LMÍ er þetta gert með að selja aðgang að sínum >>> landsupplýsingagrunni. >>> >>> * Það væri mögulegt fyrir þá að gefa okkur eitthvað undir frjálsu >>> leyfi, en með fjármálaóvissuna (þetta var nokkrum mánuðum eftir hrunið >>> ef ég man rétt) voru þeir ekki til í það. >>> >>> Það væri vel þess virði að spurja aftur, en bara þótt þeir séu með WMS >>> þjón þýðir það ekki að við getum notað gögn af honum. >>> _______________________________________________ >>> Talk-is mailing list >>> [email protected] >>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is >> Þetta seinasta er rétt. Þeir nefndu þetta með að þótt gögnin séu þarna >> þýðir ekki að það sé leyfilegt að nota þau. Sendi þó tölvupóst og spurði >> svo nú er það bara að bíða eftir svari. Þær manneskjur sem ég ræddi við >> símleiðis voru persónulega fyrir því að gögn LMÍ ættu að vera frjáls en >> lögin bundu hendur þeirra. > Ég er ekki lögfróður um þetta og það getur vel verið að ég fari með > rangt mál, en ég held að það sé ekki rétt að lögin bindi hendur > þeirra. > > Lögin eru þannig strúktúruð held ég að það er erfitt fyrir þessar > stofnanir að gefa út gögn sem dýrt er að búa til öðruvísi en að > aðgangur sé seldur vegna þess hvernig fjárveitingar til þessara > stofnana virka. Þetta er ekki tilfellið t.d. í Bandaríkjunum þar sem > öll svona gögn eru frjáls, þannig sala af þeim er ekki reiknuð við > fjárveitingar. > > En ég er nokkuð viss um að þær gætu samt ákveðið að gefa út gögn undir > frjálsum leyfum, á sama hátt og þessar stofnanir gefa núna undir gögn > sín undir séreignarleyfum. > > Af því gefnu ætti ekki að vera óhugsandi semja við þessar stofnanir um > að fá frjálsan aðgang að gögnum sem þau sitja á, við gætum notað, en > þau fá ekki tekjur af. T.d. er ég nokkuð viss um að ef við fengjum > eitthvað eins og punkta fyrir öll fjöll Íslands frá þeim misstu þeir > ekki af miklum tekjum og það kæmi okkur vel. > > Bjarki, vill svo til að þú vitir eitthvað um hvernig þessi mál standa > lagalega séð? > _______________________________________________ > Talk-is mailing list > [email protected] > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is LMÍ svaraði fyrirspurn minni á þann veg að við fengjum ekki að nota gögnin án þess að greiða samkvæmt verðskrá og ef við ætlum að birta þau þarf að greiða meira samkvæmt gjaldskrá.
- Svavar
signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
