Nah, tel ekki taka því. TIGER gögnin eru komin úr risastóru gagnasafni á 
meðan OFP er það ekki. Við ættum að geyma þann heiður þar til við fáum 
gögn sem byggjast á opinberu gagnasetti.

Í Hafnarfirðinum þvælast OFP gögnin fyrir og tel ég það miklu einfaldara 
að mynda vegi frá þeim hnútum sem eru þar nú þegar heldur en að færa OFP 
hnúta að trace-inu, bæta við botnlöngum sem gleymdust og breyta tags. 
Það er undantekningartilfelli (allavega í Hafnarfirðinum) ef OFP 
inniheldur heilt sett af undirgötum í botnlanga ef þær eru 2 eða fleiri. 
Í slíkum tilfellum get ég alveg eins eytt OFP hnútunum og farið 
venjulegu leiðina.

Eins og ég tók fram í átakspóstinum 
(http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2010-January/000381.html) 
er ætlunin að sækja ný gögn fyrir allan Hafnarfjörð og því mun ég búast 
við því að engin OFP-byggð gögn verði þar þegar fyrsta skrefi er lokið. 
Áslandið er komið - fyrir utan nokkur götunöfn - en ég verð að nefna að 
OFP gögnin hjálpuðu ekki neitt heldur voru hreint og beint fyrir. 
Stundum sá ég beygjur táknaðar í OFP gögnunum sem ég gat alls ekki leitt 
út frá mínum gögnum og gat ekki ímyndað mér hvaðan þær gætu hafa komið. 
Held að diff á milli núverandi OSM gagna fyrir Áslandið og OFP gagnanna 
leiði betur í ljós hvað ég á við. Því miður kann ég ekki að undirbúa slíkt.

Get alveg játað það að OFP gögnin eru stundum betri en alls engin gögn, 
gefið að þau innihaldi ekki of margar vitleysur. Miðað við það sem ég 
hef séð hingað til er erfitt að meta það án þess að hafa OSM gögn til að 
bera saman við.

Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval (sva...@kjarrval.is)
s. 863-9900



Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote:
> 2010/1/15 Daníel Gunnarsson <danielgunn...@gmail.com>:
>   
>> Langar aðeins að benda á villur eða öllu hvað þessi gögn eru ófullkomin.
>>
>> Ég er byrjaður að yfirfara gögnin fyrir Selfoss. Þar er mjög algeng sjón að
>> þar sem að götur greinast í marga botnlanga hefur bara einn þeirra verið
>> mældur inn (sjá dæmi í viðhengi)
>> Það þarf því í raun nokkura staðarþekkingu til þess að yfirfara gögnin.
>>     
>
> Ég lagaði áðan til í Stykkishólmi og breytti OFP gögnunum í alvöru OSM
> gögn en það var greinilegt að þetta var ekki allt þorpið:
> http://osm.org/go/efrieZBw--
>
>   
>> Hvernig haldið þið að best sé að merkja þetta svo við séum ekki að moka
>> götum inn í grunninn sem eru í raun ekki fullkláraðar?
>>     
>
> Pælingin var að bara source=ourfootprints þýddi að gatan þyrfti
> review, en það er augljóslega ekki nóg þar sem ekki er hægt að greina
> á milli gatna sem eru í lagi og ekki í lagi.
>
> Á morgun ætla ég að bæta við ourfootprints:reviewed=no á alla OFP
> vegina, þetta var gert með TIGER t.d.:
>
>     http://wiki.openstreetmap.org/wiki/TIGER_Edited_Map
>
> Þá er augljóslega hægt að greina á milli gagna sem hafa komið úr OFP
> sem eru allt í lagi og þeirra sem hafa verið blint flutt inn en eru
> mögulega ókláruð.
>
> Hljómar það vel?
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is@openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>   

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to