þriðjudagur 16. janúar 2001 00:27, þú skrifaðir:

> Því miður, þá er locale allur í nefnifalli, og enginn hægðarleikur fyrir
> heimskt stýrikerfi ( no offence ;-) að vita hvernig eigi að beygja í
> íslenskum föllum, og þá síður hvenær. Ef þú hefur einhverja einfalda lausn
> á því hvernig megi kenna stýrikerfi málfræði, þá ertu vinsamlegast beðinn
> um að gefa þig fram við málvísindadeild HÍ ;-)

Tja, ég kann lausn en ég veit ekki hvort hún er nægilega einföld til að 
málvísindastöfnun vilji vita af henni. Fellur frekar bara undir 
hugbúnaðarfræði.

Í staðinn fyrir að senda staka strengi inn í þýðingarnar sem er svo vísað í 
með %1 %2 %3 o.s.fr. ætti auðvitað að senda fylki af strengjum sem er vísað í 
með %1[1] til að fá nefnifall og svo hærri tölur innan hornklofanna til að fá 
önnur föll.

Svo þyrfti að breyta kóðanum í KDE sem skilar dagsetningu þannig að þar komi 
fylki sem sé af lengd sem ræðst af tungumálinu og restin er augljós.

Ef %1 er svo látið tákna það sama og %1[1] þá þurfa fallleysingjar aldrei að 
hugsa um þetta vesen allt saman. Hinsvegar þyrfti einhver að hafa nægann 
áhuga á þessu til að nenna að útfæra þetta og það efast ég um að gerist.

-- 
Logi Ragnarsson - [EMAIL PROTECTED]
Some day we all shall be out of scope

Reply via email to