>#2 >Mörg hús í Lambastaðahverfi eiga sér nöfn auk númera frá því í den. >Auðvitað á maður að merkja þetta líka eða hvað?
Mér finnst ástæða til að merkja bæði. En það er bara mín persónulega skoðun. Hef ekki skoðað hvernig þetta er almennt gert þar sem sambærilegar aðstæður eru uppi, t.d. í öðrum löndum. >#3 >Ég var að duglegur í smá-stund við að setja inn gangstíga og gangstéttir. >Komst svo að raun um að þetta ruglar rútureikninga forrita osmand, navit... Mér hefur sýnst að þegar verið er að henda út eldri gögnum og nota í staðinn LUKR gögnin þá verði einfaldlega að hafa í huga að það þarf að tengja stígana við göturnar hvar sem almennt má telja að "rétt" sé að fara á og af stígunum. Ég skoðaði þetta aðeins í kringum Ferjuvog í Reykjavík t.d. þar sem mér sýnist eldri gögn hafa verið þokkalega tengd en ný gögn alls ekki. Þetta býr til eyjur af stígum sem rútunin (með tilliti til hjólreiða t.d.) tekur aldrei inn í myndina og niðurstaðan verður víða fjarri því sem best gæti orðið. Getur verið að það sé til betri leið, en mér sýnist einfaldlega verða að tengja stígana gatnakerfinu á viðeigandi stöðum. En þá fæst líka ágætis virkni á þetta. >Komst einnig að raun um að reglan í OSM er: > "Ekki vera að flækja málið með gangstéttum" Það er reyndar sjónarmið, finnst mér, að á meðan við erum enn ekki komin inn með allar helstu götur almennt, þá sé kannski ástæða til að láta vera að merkja allar gangstéttar meðfram öllum vegum sem nú eru komnir inn. Vinnunni væri betur varið í að þétta veganetið og auka við aðrar staðarupplýsingar á svæðum þar sem enn er mikið óunnið. En hins vegar finnst mér alltaf ástæða til að líta á stíga sem liggja aðskildir frá vegum þannig að þá eigi að kortleggja líkt og vegina, jöfnum höndum (eins og stíg meðfram Suðurlandsbraut t.d.). Þegar einstaklingur lítur á kortið og skoðar hvaða leið hann getur valið á milli tveggja staða (óháð því svo hvað sjálfvirk rútun myndi gera í slíku tilfelli) þá er okkur eðlislægt að draga þá ályktun að meðfram götum á Íslandi eru gangstéttar og því óþarfi kannski að kortið sýni þær sérstaklega til að teljast vel nothæft. En hins vegar hjálpa stígar sem kortið sýnir einstaklingnum við að velja leið í slíkum tilfellum. mbk, Baldvin _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
