Hér er svar frá mér frá því á laugardaginn sem ég óvart vistaði í stað þess að senda á listann:
Sælir félagar. Ég er sammála Morten og Pjetri, við þurfum að skoða þessi mál með gangstéttar, göngu- og hjólastíga og ákveða hvernig við viljum að þeir séu merktir. Hér á landi eru lang flestir stígar bæði fyrir gangandi og hjólandi og því erfitt að átta sig á því hvernig eigi að merkja þá. Sumstaðar eru aðskildar reinar fyrir hjólandi og gangandi annarsstaðar eru engar merkingar. Ég hef hingað til merkt hjólastíga sem highway=cycleway og blandaða hjóla- og göngustíga og gangstéttar sem highway=footway, og bicycle=yes. Hafið þið einhverjar betri tillögur? Hvað með tengingar yfir götur og gatnamót? Kv. Þórir Már 2011/8/15 Baldvin Hansson <[email protected]> > >#2 > >Mörg hús í Lambastaðahverfi eiga sér nöfn auk númera frá því í den. > >Auðvitað á maður að merkja þetta líka eða hvað? > > Mér finnst ástæða til að merkja bæði. En það er bara mín persónulega > skoðun. > Hef ekki skoðað hvernig þetta er almennt gert þar sem sambærilegar aðstæður > eru uppi, t.d. í öðrum löndum. > > >#3 > >Ég var að duglegur í smá-stund við að setja inn gangstíga og gangstéttir. > >Komst svo að raun um að þetta ruglar rútureikninga forrita osmand, > navit... > > Mér hefur sýnst að þegar verið er að henda út eldri gögnum og nota í > staðinn > LUKR gögnin þá verði einfaldlega að hafa í huga að það þarf að tengja > stígana við göturnar hvar sem almennt má telja að "rétt" sé að fara á og af > stígunum. Ég skoðaði þetta aðeins í kringum Ferjuvog í Reykjavík t.d. þar > sem mér sýnist eldri gögn hafa verið þokkalega tengd en ný gögn alls ekki. > Þetta býr til eyjur af stígum sem rútunin (með tilliti til hjólreiða t.d.) > tekur aldrei inn í myndina og niðurstaðan verður víða fjarri því sem best > gæti orðið. > > Getur verið að það sé til betri leið, en mér sýnist einfaldlega verða að > tengja stígana gatnakerfinu á viðeigandi stöðum. En þá fæst líka ágætis > virkni á þetta. > > >Komst einnig að raun um að reglan í OSM er: > > "Ekki vera að flækja málið með gangstéttum" > > Það er reyndar sjónarmið, finnst mér, að á meðan við erum enn ekki komin > inn > með allar helstu götur almennt, þá sé kannski ástæða til að láta vera að > merkja allar gangstéttar meðfram öllum vegum sem nú eru komnir inn. > Vinnunni > væri betur varið í að þétta veganetið og auka við aðrar staðarupplýsingar á > svæðum þar sem enn er mikið óunnið. En hins vegar finnst mér alltaf ástæða > til að líta á stíga sem liggja aðskildir frá vegum þannig að þá eigi að > kortleggja líkt og vegina, jöfnum höndum (eins og stíg meðfram > Suðurlandsbraut t.d.). > > Þegar einstaklingur lítur á kortið og skoðar hvaða leið hann getur valið á > milli tveggja staða (óháð því svo hvað sjálfvirk rútun myndi gera í slíku > tilfelli) þá er okkur eðlislægt að draga þá ályktun að meðfram götum á > Íslandi eru gangstéttar og því óþarfi kannski að kortið sýni þær > sérstaklega > til að teljast vel nothæft. En hins vegar hjálpa stígar sem kortið sýnir > einstaklingnum við að velja leið í slíkum tilfellum. > > mbk, > Baldvin > > > > _______________________________________________ > Talk-is mailing list > [email protected] > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is >
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
