Hæ,
Ótengt þessu en þó : A. Viða eru til "Óskastígar" í grasinu. Til dæmis á ská frá Lágmúla niður brekkuna og að gatnamótunum Kringlumýrarbraut - Laugaveg/Suðaurlandsbraut og ... heldur áfram yfir grasinu ská á móti hinum óskastígnum. B. Viða eru umferðarljós sem (sérstaklega þegar umferð er lítill ) skynjar ef bifreið nálgast, og gefur bifreiðina grænt ljós. Sumir skynjarar "virða" bífhjól , fá ef nokkur "virða" reiðhjól, og þá oft bara ef maður staðsetur sér alveg "rétt", þeas hjóla eftir röndina á spólunni, til dæmis 30 cm frá þeim stað sem niðurföll sé /gæti verið staðsett. -- Regards / Kvedja Morten Lange, Reykjavík --- On Mon, 15/8/11, Thorir Jonsson <[email protected]> wrote: From: Thorir Jonsson <[email protected]> Subject: Re: [Talk-is] Nesið er Stærra! To: "OpenStreetMap in Iceland" <[email protected]> Date: Monday, 15 August, 2011, 14:44 Varðandi á gangstéttum og stígum yfir götur, þá mætti færa rök fyrir því að ekki ætti að kortleggja svoleiðis nema þar sem merktar gangbrautir eða gönguljós er að finna (ekki kortleggja eitthvað sem ekki á sér stoð í raunveruleiknaum). Eins mætti líka færa rök fyrir því að gangandi vegfarendur færu vissulega yfir götuna við t.d. gatnamót og því ástæða til að tengja stíga þar yfir. Mín persónulega skoðun er sú að það ætti að tengja stígana svo auðveldara sé fyrir tölvur að reikna út bestu leiðir fyrir gangandi og hjólandi. Hvernig þetta lítur út á kortinu er eitthvað fyrir renderana að finna út úr. Kanski ætta að leggja til nýtt tag fyrir þetta, tengingu yfir götu sem ekki sést (render=no t.d.)? Kv. Þórir Már 2011/8/15 Thorir Jonsson <[email protected]> Hér er svar frá mér frá því á laugardaginn sem ég óvart vistaði í stað þess að senda á listann: Sælir félagar. Ég er sammála Morten og Pjetri, við þurfum að skoða þessi mál með gangstéttar, göngu- og hjólastíga og ákveða hvernig við viljum að þeir séu merktir. Hér á landi eru lang flestir stígar bæði fyrir gangandi og hjólandi og því erfitt að átta sig á því hvernig eigi að merkja þá. Sumstaðar eru aðskildar reinar fyrir hjólandi og gangandi annarsstaðar eru engar merkingar. Ég hef hingað til merkt hjólastíga sem highway=cycleway og blandaða hjóla- og göngustíga og gangstéttar sem highway=footway, og bicycle=yes. Hafið þið einhverjar betri tillögur? Hvað með tengingar yfir götur og gatnamót? Kv. Þórir Már 2011/8/15 Baldvin Hansson <[email protected]> >#2 >Mörg hús í Lambastaðahverfi eiga sér nöfn auk númera frá því í den. >Auðvitað á maður að merkja þetta líka eða hvað? Mér finnst ástæða til að merkja bæði. En það er bara mín persónulega skoðun. Hef ekki skoðað hvernig þetta er almennt gert þar sem sambærilegar aðstæður eru uppi, t.d. í öðrum löndum. >#3 >Ég var að duglegur í smá-stund við að setja inn gangstíga og gangstéttir. >Komst svo að raun um að þetta ruglar rútureikninga forrita osmand, navit... Mér hefur sýnst að þegar verið er að henda út eldri gögnum og nota í staðinn LUKR gögnin þá verði einfaldlega að hafa í huga að það þarf að tengja stígana við göturnar hvar sem almennt má telja að "rétt" sé að fara á og af stígunum. Ég skoðaði þetta aðeins í kringum Ferjuvog í Reykjavík t.d. þar sem mér sýnist eldri gögn hafa verið þokkalega tengd en ný gögn alls ekki. Þetta býr til eyjur af stígum sem rútunin (með tilliti til hjólreiða t.d.) tekur aldrei inn í myndina og niðurstaðan verður víða fjarri því sem best gæti orðið. Getur verið að það sé til betri leið, en mér sýnist einfaldlega verða að tengja stígana gatnakerfinu á viðeigandi stöðum. En þá fæst líka ágætis virkni á þetta. >Komst einnig að raun um að reglan í OSM er: > "Ekki vera að flækja málið með gangstéttum" Það er reyndar sjónarmið, finnst mér, að á meðan við erum enn ekki komin inn með allar helstu götur almennt, þá sé kannski ástæða til að láta vera að merkja allar gangstéttar meðfram öllum vegum sem nú eru komnir inn. Vinnunni væri betur varið í að þétta veganetið og auka við aðrar staðarupplýsingar á svæðum þar sem enn er mikið óunnið. En hins vegar finnst mér alltaf ástæða til að líta á stíga sem liggja aðskildir frá vegum þannig að þá eigi að kortleggja líkt og vegina, jöfnum höndum (eins og stíg meðfram Suðurlandsbraut t.d.). Þegar einstaklingur lítur á kortið og skoðar hvaða leið hann getur valið á milli tveggja staða (óháð því svo hvað sjálfvirk rútun myndi gera í slíku tilfelli) þá er okkur eðlislægt að draga þá ályktun að meðfram götum á Íslandi eru gangstéttar og því óþarfi kannski að kortið sýni þær sérstaklega til að teljast vel nothæft. En hins vegar hjálpa stígar sem kortið sýnir einstaklingnum við að velja leið í slíkum tilfellum. mbk, Baldvin _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is -----Inline Attachment Follows----- _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
