Hæ. Ég er nokkuð nýr á þessum póstlista en frétti þó af OSM fyrir eitthvað um ári síðan þegar ég reyndi að redda ókeypis korti á Garmin tækið mitt. Ævar rifjaði upp kynni mín af OSM verkefninu þegar hann kom með tilkynningu um gengi þess síðastliðið ár á FSFÍ póstlistann. Stuttu eftir það nefndi ég á sama póstlista að ég myndi glaður redda punktum ef ég fengi lánað tilsvarandi tæki. Baldvin hjá Rögg stökk á það boð og sótti ég tækið til hans svo ég gæti safnað punktum yfir eina helgi. Þar sem ég gat ekki tekið þá úr tækinu sendi hann mér punktana og setti ég þá inn með hjálp JOSM. Það ferli tók enga stund miðað við þann tíma sem það tók að safna þeim.
Reynslan var nokkuð dýrmæt þar sem ég bæði safnaði punktum fyrir OSM og kynntist nágrenninu betur (í sumum tilvikum rifjaði ég þau upp). Nágrennið sem um ræðir er Vallarhverfið í Hafnarfirði ásamt Helluhverfinu (iðnaðarhverfi) en þið ættuð að geta séð afraksturinn á OSM vefnum. Í einhverjum tilvikum þurfti ég að leiðrétta punkta en í langflestum tilvikum bætti ég þeim við. Því miður skráði ég ekki alltaf hvað göturnar hétu svo að sumar þeirra eru nafnlausar þessa stundina. Einnig yfirsást mér nokkrar götur en ég setti þær á OSM bugs. Ef einhver hefur tillögur um það sem mætti fara betur hjá mér er það velkomið. Það væri betra ef ég þyrfti ekki alltaf að fá tæki að láni og langar mig því að kaupa mitt eigið tæki punktasöfnunartæki. Það væri betra upp á að geta safnað punktum án mikils fyrirvara og í smærri skömmtum. Review listinn á OSM er (því miður) alltof stór og torlesinn svo ég efast um að ég muni nokkurn tímann getað notað hann til að finna hentugt tæki. Ég væri þakklátur ef þið getið bent á ákveðið tæki sem ég ætti að geta notað hvort sem það er í bíl eða fótgangandi. Það má alveg kosta nokkra þúsundkalla og þarf ekki að vera ódýrasta tækið á markaðnum (þó ekki of dýrt). Það er mikið verk fyrir höndum í Hafnarfirðinum þar sem það vantar mikið af götum. Sem Hafnfirðingi sárnar mér að sjá götuskortinn í Hafnarfirði og langar mig að bæta úr því sem fyrst. Bara svo þið fáið nasaþef af því sem þarf að laga er hér grófur listi. Vantar í Hafnarfirði: * Góður hluti af Hvömmunum. * Götur hér og þar í Holtinu. * Götur hjá suðurhluta hafnarinnar (Suðurhöfn). * Nokkuð margar götur sunnan Lækjargötu. * Góður hluti gatnanna sem liggja út frá Hlíðarbergi (afgangurinn af Setberginu virðist vera nokkuð ítarlegur). * Vantar götur í miðbænum. * Vantar mikið af götum í Hraununum vestan Fjarðarhrauns. * "Gamli bærinn" að mestu ókortlagður. Vantar í nágrenni Hafnarfjarðar: * Ýmislegt milli Hafnarfjarðar og Álftaness (vegir, sveitabæir o.s.frv.) * Ýmsir bæir á Álftanesinu (aðallega þeir sem eru að Suðurnesvegi og Norðurnesvegi). * Götur hjá Stígunum á Álftanesi ásamt tilheyrandi sveitabæjum. * Eiginlega allt Ásahverfið í Garðabæ. Ef ég kemst ekki í þetta eða einhver vill hjálpa mér með þetta, þá hafið þið allavega listann. -- Með kveðju / With regards, Svavar Kjarrval ([email protected]) s. 863-9900 _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
