Ég nota Garmin Nüvi og það virkar bara fínt, amk. hef ég ekki rekið mig á stóra galla við það tæki. Ég þarf ekki auka forrit til að nálgast punktana, tengi bara USB-snúruna við tölvuna (Ubuntu) og ekkert vesen. Tækið mitt er hægt að stilla á nákvæmni; hvort sem maður er fótgangandi, á hjóli eða bílandi og það virkar vel.
Annars hef ég litla reynslu af öðrum tækjum. Kv. Jóna Þórunn. On Sun, 2009-12-27 at 00:23 +0000, Christoph L. Hess wrote: > GPS tæki: held sé best að kaupa Garmin GPS tæki (þetta á ekki að vera > auglysing...). > > ég er að nota Garmin etrax Vista HCx (kostar um 40.000 ISK hjá elko) og > er mjög ánægð. Þetta er svona GPS tæki fyrir gangandi fólk en virkar > jafnvel í bílnum, en ekki eins sog svona sérstakt GPS-tæki fyrir bíla > með stóran skjár og leiðarútreikning og "talar" ekki. Mjög auðvelt að > safna punktur og setja á OSM. > > En ég veit ekki hvort svona Garmin nüvi bíla-GPS-tæki getur safnað > punktur? þú þarfst auka software, en samt er það ekki alveg gott og gæti > verið að virki ekki > (http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Garmin/N%C3%BCvi_series). > > Vonandi íslenskan min var skiljanleg... :-) > > Gleðileg jól > Christoph > > Am 25.12.2009 22:14, schrieb Svavar Lúthersson: > > Hæ. > > > > Ég er nokkuð nýr á þessum póstlista en frétti þó af OSM fyrir eitthvað > > um ári síðan þegar ég reyndi að redda ókeypis korti á Garmin tækið mitt. > > Ævar rifjaði upp kynni mín af OSM verkefninu þegar hann kom með > > tilkynningu um gengi þess síðastliðið ár á FSFÍ póstlistann.n a Stuttu > > eftir það nefndi ég á sama póstlista að ég myndi glaður redda punktum ef > > ég fengi lánað tilsvarandi tæki. Baldvin hjá Rögg stökk á það boð og > > sótti ég tækið til hans svo ég gæti safnað punktum yfir eina helgi. Þar > > sem ég gat ekki tekið þá úr tækinu sendi hann mér punktana og setti ég > > þá inn með hjálp JOSM. Það ferli tók enga stund miðað við þann tíma sem > > það tók að safna þeim. > > > > Reynslan var nokkuð dýrmæt þar sem ég bæði safnaði punktum fyrir OSM og > > kynntist nágrenninu betur (í sumum tilvikum rifjaði ég þau upp). > > Nágrennið sem um ræðir er Vallarhverfið í Hafnarfirði ásamt > > Helluhverfinu (iðnaðarhverfi) en þið ættuð að geta séð afraksturinn á > > OSM vefnum. Í einhverjum tilvikum þurfti ég að leiðrétta punkta en í > > langflestum tilvikum bætti ég þeim við. Því miður skráði ég ekki alltaf > > hvað göturnar hétu svo að sumar þeirra eru nafnlausar þessa stundina. > > Einnig yfirsást mér nokkrar götur en ég setti þær á OSM bugs. Ef einhver > > hefur tillögur um það sem mætti fara betur hjá mér er það velkomið. > > > > Það væri betra ef ég þyrfti ekki alltaf að fá tæki að láni og langar mig > > því að kaupa mitt eigið tæki punktasöfnunartæki. Það væri betra upp á að > > geta safnað punktum án mikils fyrirvara og í smærri skömmtum. Review > > listinn á OSM er (því miður) alltof stór og torlesinn svo ég efast um að > > ég muni nokkurn tímann getað notað hann til að finna hentugt tæki. Ég > > væri þakklátur ef þið getið bent á ákveðið tæki sem ég ætti að geta > > notað hvort sem það er í bíl eða fótgangandi. Það má alveg kosta nokkra > > þúsundkalla og þarf ekki að vera ódýrasta tækið á markaðnum (þó ekki of > > dýrt). > > > > Það er mikið verk fyrir höndum í Hafnarfirðinum þar sem það vantar mikið > > af götum. Sem Hafnfirðingi sárnar mér að sjá götuskortinn í Hafnarfirði > > og langar mig að bæta úr því sem fyrst. Bara svo þið fáið nasaþef af því > > sem þarf að laga er hér grófur listi. > > > > Vantar í Hafnarfirði: > > * Góður hluti af Hvömmunum. > > * Götur hér og þar í Holtinu. > > * Götur hjá suðurhluta hafnarinnar (Suðurhöfn). > > * Nokkuð margar götur sunnan Lækjargötu. > > * Góður hluti gatnanna sem liggja út frá Hlíðarbergi (afgangurinn af > > Setberginu virðist vera nokkuð ítarlegur). > > * Vantar götur í miðbænum. > > * Vantar mikið af götum í Hraununum vestan Fjarðarhrauns. > > * "Gamli bærinn" að mestu ókortlagður. > > > > Vantar í nágrenni Hafnarfjarðar: > > * Ýmislegt milli Hafnarfjarðar og Álftaness (vegir, sveitabæir o.s.frv.) > > * Ýmsir bæir á Álftanesinu (aðallega þeir sem eru að Suðurnesvegi og > > Norðurnesvegi). > > * Götur hjá Stígunum á Álftanesi ásamt tilheyrandi sveitabæjum. > > * Eiginlega allt Ásahverfið í Garðabæ. > > > > Ef ég kemst ekki í þetta eða einhver vill hjálpa mér með þetta, þá hafið > > þið allavega listann. > > > > _______________________________________________ > Talk-is mailing list > [email protected] > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
_______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
