Hæ.

Ég rakst á patch til að láta Garmin Nuvi 200W skrá punkta niður á 
sekúndufresti (f. útgáfu 4.00). Það vill svo til að ég á einmitt 
svoleiðis tæki og ætla að prófa það ef ég hef tæki með HWID sem patchinn 
er gefinn út fyrir (læt ykkur vita hvernig það virkar). Held upp á það 
með upptöku nokkurra gatna í nágrenninu. Hef tækið sem þið mæltuð með í 
huga ef patchinn virkar ekki. Slóðin á þennan patch er 
http://www.malsingmaps.com/forums/viewtopic.php?f=9&t=9014&st=0&sk=t&sd=a&start=120
 
<http://www.malsingmaps.com/forums/viewtopic.php?f=9&t=9014&st=0&sk=t&sd=a&start=120>
 
(apply at your own risk).

Eins og ég nefndi í upprunalega póstinum eru sumar göturnar nafnlausar 
þar sem ég tók ekki niður nöfnin á þeim. Ástæðan var aðallega sú að um 
var að ræða fyrstu umferð og var ég því ekki að skrá niður nöfnin fyrir 
utan nafnlausu göturnar austast í Vallarhverfinu en þar eru ekki komin 
hús, hvað þá nafnaskilti. Einnig vogaði ég mér ekki að nota önnur 
útgefin kort til að fá nöfnin og fannst mér betra að göturnar séu á 
kortinu þótt þær beri ekki nafn. T.d. vantar götunöfn á (nær) allar 
götur Helluhverfisins (vestan Vallarhverfis) en góður hluti hverfisins 
var áður ókannaður og átti ég erfitt með að vita hvar götur enduðu og 
byrjuðu. Það er eitthvað sem ég get bætt úr síðar.

Skal skoða þetta með suburb merkinguna en hún yrði alls ekki fullkomin 
þar sem ég veit ekki hvar mörkin eru nákvæmlega á sumum þeirra. Finnst 
mér einnig góð landuse=* hugmyndin en ég ætla fyrst að leysa 
götuskortinn áður en ég fer út í það fyrir alvöru. Einnig er góður hluti 
slíkra svæða einmitt markaður af götum sem vantar á kortið.

Með kveðju / With regards,
Svavar Lúthersson ([email protected])
s. 863-9900


_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to