Sæll. Þegar ég fékk áhuga á OSM þá fór ég að leita að hentugu GPS tæki til að 
nota. Kröfurnar voru mjög einfaldar þar sem ég vildi aðeins ódýrt tæki með 
USB-tengi og getu til að taka upp slóðir og skila þeim af sér á GPX-formi. 
Fyrir valinu varð Garmin eTrex Legend CX sem ég pantaði af eBay fyrir $134. Ég 
hef verið mjög sáttur með það og hef notað það bæði gangandi og akandi. Það er 
nákvæmt og afar einfalt er að sækja GPX-slóðana úr því. Ef ég á að nefna 
einhverja galla þá er það helst það að tækið er lengi að ná læsingu á 
gervihnattamerkin. Ég mæli með þessu tæki þar sem það er eins og sniðið fyrir 
vinnu með OSM. Það sama má eflaust segja um önnur tæki í eTrex-línunni.

On 25.12.2009, at 22:14, Svavar Lúthersson wrote:

> Hæ.
> 
> Ég er nokkuð nýr á þessum póstlista en frétti þó af OSM fyrir eitthvað 
> um ári síðan þegar ég reyndi að redda ókeypis korti á Garmin tækið mitt. 
> Ævar rifjaði upp kynni mín af OSM verkefninu þegar hann kom með 
> tilkynningu um gengi þess síðastliðið ár á FSFÍ póstlistann. Stuttu 
> eftir það nefndi ég á sama póstlista að ég myndi glaður redda punktum ef 
> ég fengi lánað tilsvarandi tæki. Baldvin hjá Rögg stökk á það boð og 
> sótti ég tækið til hans svo ég gæti safnað punktum yfir eina helgi. Þar 
> sem ég gat ekki tekið þá úr tækinu sendi hann mér punktana og setti ég 
> þá inn með hjálp JOSM. Það ferli tók enga stund miðað við þann tíma sem 
> það tók að safna þeim.
> 
> Reynslan var nokkuð dýrmæt þar sem ég bæði safnaði punktum fyrir OSM og 
> kynntist nágrenninu betur (í sumum tilvikum rifjaði ég þau upp). 
> Nágrennið sem um ræðir er Vallarhverfið í Hafnarfirði ásamt 
> Helluhverfinu (iðnaðarhverfi) en þið ættuð að geta séð afraksturinn á 
> OSM vefnum. Í einhverjum tilvikum þurfti ég að leiðrétta punkta en í 
> langflestum tilvikum bætti ég þeim við. Því miður skráði ég ekki alltaf 
> hvað göturnar hétu svo að sumar þeirra eru nafnlausar þessa stundina. 
> Einnig yfirsást mér nokkrar götur en ég setti þær á OSM bugs. Ef einhver 
> hefur tillögur um það sem mætti fara betur hjá mér er það velkomið.
> 
> Það væri betra ef ég þyrfti ekki alltaf að fá tæki að láni og langar mig 
> því að kaupa mitt eigið tæki punktasöfnunartæki. Það væri betra upp á að 
> geta safnað punktum án mikils fyrirvara og í smærri skömmtum. Review 
> listinn á OSM er (því miður) alltof stór og torlesinn svo ég efast um að 
> ég muni nokkurn tímann getað notað hann til að finna hentugt tæki. Ég 
> væri þakklátur ef þið getið bent á ákveðið tæki sem ég ætti að geta 
> notað hvort sem það er í bíl eða fótgangandi. Það má alveg kosta nokkra 
> þúsundkalla og þarf ekki að vera ódýrasta tækið á markaðnum (þó ekki of 
> dýrt).
> 
> Það er mikið verk fyrir höndum í Hafnarfirðinum þar sem það vantar mikið 
> af götum. Sem Hafnfirðingi sárnar mér að sjá götuskortinn í Hafnarfirði 
> og langar mig að bæta úr því sem fyrst. Bara svo þið fáið nasaþef af því 
> sem þarf að laga er hér grófur listi.
> 
> Vantar í Hafnarfirði:
> * Góður hluti af Hvömmunum.
> * Götur hér og þar í Holtinu.
> * Götur hjá suðurhluta hafnarinnar (Suðurhöfn).
> * Nokkuð margar götur sunnan Lækjargötu.
> * Góður hluti gatnanna sem liggja út frá Hlíðarbergi (afgangurinn af 
> Setberginu virðist vera nokkuð ítarlegur).
> * Vantar götur í miðbænum.
> * Vantar mikið af götum í Hraununum vestan Fjarðarhrauns.
> * "Gamli bærinn" að mestu ókortlagður.
> 
> Vantar í nágrenni Hafnarfjarðar:
> * Ýmislegt milli Hafnarfjarðar og Álftaness (vegir, sveitabæir o.s.frv.)
> * Ýmsir bæir á Álftanesinu (aðallega þeir sem eru að Suðurnesvegi og 
> Norðurnesvegi).
> * Götur hjá Stígunum á Álftanesi ásamt tilheyrandi sveitabæjum.
> * Eiginlega allt Ásahverfið í Garðabæ.
> 
> Ef ég kemst ekki í þetta eða einhver vill hjálpa mér með þetta, þá hafið 
> þið allavega listann.
> 
> -- 
> Með kveðju / With regards,
> Svavar Kjarrval ([email protected])
> s. 863-9900
> 
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> [email protected]
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to