Vildi láta ykkur vita að erindið var tekið fyrir í skipulags- og byggingarráði þann 2. nóvember með eftirfarandi bókun:

„Tekið til umræðu erindi Svavars Kjarrval Lútherssonar f.h. OpenStreetMap sjálfboðaverkefnis varðandi kortlagningu göngu- og hjólreiðastíga um afnot af kortagrunnum Hafnarfjarðarbæjar.

Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið en felur skipulags- og byggingarsviðs að skoða útfærslu í samvinnu við umsækjanda.“

Þeir hafa ekki enn haft samband svo ég veit ekkert meira en stendur í þessari bókun. Ef þið lumið á útfærsluatriðum sem ætti að hafa í huga, endilega sendið þau á póstlistann.

Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected])
s. 863-9900


On 30.9.2010 23:11, Svavar Kjarrval wrote:
 Sælt póstlistafólk.

Fylgdi eftir greininni í Fjarðarpóstinummeð bréfi til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fyrr í dag. Veit ekki hvenær það verður tekið fyrir. Erindið fylgir í viðhengi.

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to