2010/11/10 Svavar Kjarrval <[email protected]>: > Fundurinn gekk ágætlega (hann var allavega ekki tilgangslaus). Þau eru > tilbúin til að láta mig fá miðlínur gatna og stíga, hæðarlínur og > staðsetningu húsnúmera og götuheiti. Þetta er allt í AutoCAD (*.dwg) en þau > geta umbreytt í Shapefile og MicroStation sniðin. Afhendingin yrði > gjaldfrjáls nema þau hefji að rukka almennt fyrir afhendingu slíkra gagna. > > Gallinn er hins vegar sá að þau vilja ekki að gögnin fari lengra en til eins > aðila því þau vilja vita hverjir hafa þau undir höndunum. Þau vilja ekki að > ég (sem tek við kortinu) verði dreifingaraðili. Þeim er hins vegar sama um > afleidd verk af gögnunum á meðan frumgögnin fara ekki lengra. Þess vegna > stakk ég upp á því að ég gæti gert rammasamning við bæinn og séð um að vinna > úr þessu. Það sem færi inn á OSM væri afleitt verk og bryti því ekki í bága > við samninginn. Frumgögnin væru bundin við mig en þau myndu allavega nýtast > OSM.
Frábært, mér skilst að Shapefile væri best upp á notkun í OpenStreetMap, það er yfirleitt verið að breyta úr því sniði. En að fá þetta á AutoCAD líka væri gott upp á að þú værir með frumgögnin. Spurning að fá þá eins og Reykjavík til að fara inn á OpenStreetMap vefinn og samþykkja contributor terms? Ætti að vera einfaldast að höndla lagahliðina þannig. _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
