Hæ.
Miðað við hugmyndina mína um rammasamning yrði óþarfi að samþykkja
contributer terms. Lagalega séð væri ég höfundur afleiddu gagnanna og
með því að senda þau inn væri ég að samþykkja skilmála OSM hvort sem er.
Hafnarfjarðarbær er ekki að rukka fyrir afhendingu gagnanna og jafnvel
þeir sem selja kort þurfa ekki að greiða neitt fyrir leyfið eða gögnin.
Af hverju ætti það þá að vera vandamál fyrir OSM?
Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected])
s. 863-9900
On 10.11.2010 15:53, Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote:
2010/11/10 Svavar Kjarrval<[email protected]>:
Fundurinn gekk ágætlega (hann var allavega ekki tilgangslaus). Þau eru
tilbúin til að láta mig fá miðlínur gatna og stíga, hæðarlínur og
staðsetningu húsnúmera og götuheiti. Þetta er allt í AutoCAD (*.dwg) en þau
geta umbreytt í Shapefile og MicroStation sniðin. Afhendingin yrði
gjaldfrjáls nema þau hefji að rukka almennt fyrir afhendingu slíkra gagna.
Gallinn er hins vegar sá að þau vilja ekki að gögnin fari lengra en til eins
aðila því þau vilja vita hverjir hafa þau undir höndunum. Þau vilja ekki að
ég (sem tek við kortinu) verði dreifingaraðili. Þeim er hins vegar sama um
afleidd verk af gögnunum á meðan frumgögnin fara ekki lengra. Þess vegna
stakk ég upp á því að ég gæti gert rammasamning við bæinn og séð um að vinna
úr þessu. Það sem færi inn á OSM væri afleitt verk og bryti því ekki í bága
við samninginn. Frumgögnin væru bundin við mig en þau myndu allavega nýtast
OSM.
Frábært, mér skilst að Shapefile væri best upp á notkun í
OpenStreetMap, það er yfirleitt verið að breyta úr því sniði.
En að fá þetta á AutoCAD líka væri gott upp á að þú værir með frumgögnin.
Spurning að fá þá eins og Reykjavík til að fara inn á OpenStreetMap
vefinn og samþykkja contributor terms? Ætti að vera einfaldast að
höndla lagahliðina þannig.
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is