Hæ.

Takk allir fyrir ráðleggingarnar.

Fundurinn gekk ágætlega (hann var allavega ekki tilgangslaus). Þau eru tilbúin til að láta mig fá miðlínur gatna og stíga, hæðarlínur og staðsetningu húsnúmera og götuheiti. Þetta er allt í AutoCAD (*.dwg) en þau geta umbreytt í Shapefile og MicroStation sniðin. Afhendingin yrði gjaldfrjáls nema þau hefji að rukka almennt fyrir afhendingu slíkra gagna.

Gallinn er hins vegar sá að þau vilja ekki að gögnin fari lengra en til eins aðila því þau vilja vita hverjir hafa þau undir höndunum. Þau vilja ekki að ég (sem tek við kortinu) verði dreifingaraðili. Þeim er hins vegar sama um afleidd verk af gögnunum á meðan frumgögnin fara ekki lengra. Þess vegna stakk ég upp á því að ég gæti gert rammasamning við bæinn og séð um að vinna úr þessu. Það sem færi inn á OSM væri afleitt verk og bryti því ekki í bága við samninginn. Frumgögnin væru bundin við mig en þau myndu allavega nýtast OSM.

Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected])
s. 863-9900


On 10.11.2010 00:54, Björgvin Ragnarsson wrote:
Sælt

Ég ætla bara að skjóta því að að ég er enn að bíða eftir svörum frá
Rvk um skýrari höfundarrétt, hvort við fáum fleiri gögn en stígana
o.fl.
Ég reyni að ýta betur á eftir því.

kv.

Björgvin

2010/11/9 Daníel Gunnarsson<[email protected]>:
Sæl

Mín tilfinning er sú að Reykjavík sé eina sveitarfélagið sem hefur selt
aðgang að þessum vektorgögnum. Minni sveitarfélögin hafa bent manni á að
hafa samband við umsjónaraðila landupplýsingakerfis til að nálgast þau gögn
sem maður þarf við sína vinnu endurgjaldslaust (með minni sveitarfélögum á
ég við þau sveitarfélög sem notast við infrapath frá Snertli eða Granna frá
Verksud). Ég sé því ekki að sveitarfélögin hafi neinn hag af því að liggja á
þessum gögnum og sé frekar að valda þeim kostnaði þar sem að þau enda
eflaust sjálf á að vera rukkuð fyrir þeirri vinnu sem er fólgin í því að
sækja gögnin úr kerfunum í hvert skipti. (Þetta gæti samt hafa breyst frá
því að ég var að vinna í þessu)

Það sem mætti bæta við þessa upptalningu Þóris eru hæðarlínur sem myndu
nýtast sérstaklega vel í hjólavefsjána (Hver er annars statusinn á því
máli?).

Annars er ég sammála um að gagnasöfnunin ætti ekki að einskorðast við þá
hluti sem eru sýnilegir á kortunum okkar en ef þú heldur að við stöndum
sterkari í þessari viðræðu með því að skorða okkur við einhvert subset af
gögnum myndi ég stinga upp á eftirfarand:

-Götur (miðlínur og flákar)
-Göngustígar (miðlínur og flákar)
-Hús og lóðir
-Sveitarfélagsmörk
-hæðalínur

Þetta subset myndi gagnast mjög vel í því sem ég veit til að sé verið að
nota þessi gögn í í dag. Ástæða þess að ég segi miðlínur og fláka er að
mikið af gagnlegum gögnum hanga oftast á miðlínum gatna svo sem nafn,
hámarkshraði og einstefnur.

Ég veit lítið um hvernig þessi gagnaöflun fór fram við Reykjavíkurborg en á
því sem var sent á póstlistann fékk ég það á tilfinninguna að þeir væru bara
að gefa göngustígana sína frjálsa og vonuðust til þess að fá eitthvað
nothæft útúr því. Ég er þeirrar skoðunar að það þurfi að reyna að "selja"
þeim hjá Hafnarfjarðarbæ allt value-ið sem þeir eru í raun og veru að fá með
því að því að gefa öll þessi gögn frjáls en það borgar sig kannski að taka
þetta smærri skrefum.

kv. Daníel G

2010/11/9 Thorir Jonsson<[email protected]>
Sæll Svavar,

Það er ánægjulegt að sjá að Hafnarfjarðarbær hafi áhuga á þessu verkefni.
Helst af öllu viljum við auðvitað sjá að allt Landupplýsingakerfi
Hafnarfjarðar verið gert Public Domain, eða að minnstakosti nógu opið til að
við getum nýtt það í OSM.  Annars er bara að biðja um allt sem getur nýst
okkur s.s. miðlínur (eða útlínur), gatna, stíga og stétta.  Útlínur
bygginga, staðsetningar húsnúmera, útlínur bæjarfélagsins (þar með talið
strandlínan), almenningsgarðar, tré og runnar, annar gróður.  Loftnet og
annar fjarskiptabúnaður.  Það mætti þessvegna óska eftir upplýsingum eins og
skólplögnum, rafmagnsleiðslum, ljósleiðurum, heitu og köldu vatni og hverju
því fleiru sem er grafið í jörðina undir okkur (það þarf ekki að takmarka
gagnasöfnunina við það sem er teiknað á MAPNIK eða OSMARENDER kortin).

Eins væri hægt að biðja um aðgang að loftmyndum.  Það gæti verið að bænum
þætti auðveldara að gera loftmyndirnar public domain en vektor gögnin í
LUKR.

Í stuttu máli, því meira sem við fáum, því betra.

Á síðunni um Hafnarfjörð á Lýsigagnavefnum má fá ágætis hugmynd um hvaða
gögn bærinn á.  Þú getur haft hana til hliðsjónar.
http://landlysing.lmi.is/data/ig-o94.htm

Annars segi ég bara, gangi þér vel og við bíðum spennt eftir niðurstöðum
af fundinum.

Bestu kveðjur,
Þórir Már


2010/11/9 Svavar Kjarrval<[email protected]>
Sælt fólk.

Mun hitta einn hjá skipulags- og byggingasviði á morgun til að ræða
nánari útfærslur á þessu. Þætti betra ef helstu hugmyndir kæmu fram í
upphafi ferilsins í stað þess að það komi smátt og smátt, sérstaklega ef
þeir eru nokkuð opnir fyrir þessu núna. Yrði nokkuð pirrandi fyrir þá ef ég
kæmi alltaf reglulega og bæði um fleiri og fleiri tegundir af gögnum.

Og aftur bið ég um tillögur að því sem ég ætti að biðja um umfram GPS
hnit af vegum og stígum. Þá er hægt að athuga hvort bærinn búi yfir þessum
upplýsingum og hvort það gæti verið með í endanlegu útfærslunni. Markmiðið
verður að setja fram að upplýsingarnar verði public domain en til vara
OSM-samhæft leyfi.

Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected])
s. 863-9900


On 4.11.2010 13:35, Svavar Kjarrval wrote:
Vildi láta ykkur vita að erindið var tekið fyrir í skipulags- og
byggingarráði þann 2. nóvember með eftirfarandi bókun:

„Tekið til umræðu erindi Svavars Kjarrval Lútherssonar f.h.
OpenStreetMap sjálfboðaverkefnis varðandi kortlagningu göngu- og
hjólreiðastíga um afnot af kortagrunnum Hafnarfjarðarbæjar.

Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið en felur skipulags-
og byggingarsviðs að skoða útfærslu í samvinnu við umsækjanda.“

Þeir hafa ekki enn haft samband svo ég veit ekkert meira en stendur í
þessari bókun. Ef þið lumið á útfærsluatriðum sem ætti að hafa í huga,
endilega sendið þau á póstlistann.

Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected])
s. 863-9900


On 30.9.2010 23:11, Svavar Kjarrval wrote:
  Sælt póstlistafólk.

Fylgdi eftir greininni í Fjarðarpóstinummeð bréfi til bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar fyrr í dag. Veit ekki hvenær það verður tekið fyrir. Erindið
fylgir í viðhengi.

Með kveðju,
Svavar Kjarrval
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to