Sælt fólk.

Mun hitta einn hjá skipulags- og byggingasviði á morgun til að ræða nánari útfærslur á þessu. Þætti betra ef helstu hugmyndir kæmu fram í upphafi ferilsins í stað þess að það komi smátt og smátt, sérstaklega ef þeir eru nokkuð opnir fyrir þessu núna. Yrði nokkuð pirrandi fyrir þá ef ég kæmi alltaf reglulega og bæði um fleiri og fleiri tegundir af gögnum.

Og aftur bið ég um tillögur að því sem ég ætti að biðja um umfram GPS hnit af vegum og stígum. Þá er hægt að athuga hvort bærinn búi yfir þessum upplýsingum og hvort það gæti verið með í endanlegu útfærslunni. Markmiðið verður að setja fram að upplýsingarnar verði public domain en til vara OSM-samhæft leyfi.

Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected])
s. 863-9900


On 4.11.2010 13:35, Svavar Kjarrval wrote:
Vildi láta ykkur vita að erindið var tekið fyrir í skipulags- og byggingarráði þann 2. nóvember með eftirfarandi bókun:

„Tekið til umræðu erindi Svavars Kjarrval Lútherssonar f.h. OpenStreetMap sjálfboðaverkefnis varðandi kortlagningu göngu- og hjólreiðastíga um afnot af kortagrunnum Hafnarfjarðarbæjar.

Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið en felur skipulags- og byggingarsviðs að skoða útfærslu í samvinnu við umsækjanda.“

Þeir hafa ekki enn haft samband svo ég veit ekkert meira en stendur í þessari bókun. Ef þið lumið á útfærsluatriðum sem ætti að hafa í huga, endilega sendið þau á póstlistann.

Með kveðju / With regards,
Svavar Kjarrval ([email protected])
s. 863-9900


On 30.9.2010 23:11, Svavar Kjarrval wrote:
 Sælt póstlistafólk.

Fylgdi eftir greininni í Fjarðarpóstinummeð bréfi til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fyrr í dag. Veit ekki hvenær það verður tekið fyrir. Erindið fylgir í viðhengi.

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to