Ævar heiti ég og vil gefa ykkur smá skýrslu um það hvernig
OpenStreetMap verkefninu hefur farnað á síðastliðnu ári þegar kemur að
Íslandi. Ég sendi skilaboðin á FSFÍ og RGLUG listann auk póslistans
fyrir OSM á Íslandi þar sem árlegar stöðuskýrslur um frjáls verkefni
tengd Íslandi eru örugglega vel þegnar þar.

Fyrir þá sem ekki vita er OpenStreetMap kortagrunnur af allri jörðinni
sem inniheldur efni undir frjálsu leyfi (CC-BY-SA) og miðar að því að
verða aðalupplýsingaveitan fyrir kortagögn, rétt eins og Wikipedia er
orðin aðalveitan fyrir alfræðigögn.

Það er misjafnt eftir svæðum hvernig því lokamarkmiði gengur. Á sumum
átaka- og fátæktarsvæðum er OpenStreetMap kortið það besta sem til er
því engin önnur samtök hafa áhuga á að legga vinnu í slíka
kortlagningu, en á flestum stöðum í heiminum erum við enn að rekja
lestina miðað við ófrjálsa ríkisstyrkta grunna sem hafa áratugsforskot
á okkur. En jafnvel á þeim svæðum erum við oft betri. Það eru t.d.
margir göngustígar og slóðar á OpenStreetMap á Íslandi sem eru ekki á
neinu öðru korti því það svarar ekki kostnaði að kortleggja þá.

Eðli grunnsins fer mikið eftir svæðum. Sums staðar, t.d. í
Bandaríkjunum, voru þegar til stórir kortagrunnar undir frjálsum
leyfum (TIGER) sem lögð er mikil vinna í að leiðrétta og bæta. Á öðrum
stöðum, t.d. í flestum stórborgum Evrópu, eru til góðar loftmyndir í
boði Yahoo! sem nægja til að rekja allt niður í gangstéttir og fer
mikil vinna í að teikna upp eftir þeim.

Á Íslandi hinsvegar er nánast allt efnið í grunninum með örfáum
undantekningum rekið upp úr GPS ferlum. Notendur fara um götur, stíga
og annað með GPS tæki og teikna svo upp vegi, punkta og fleira upp úr
þessum ferlum.

Annað sem vert er að taka fram er að OSM verkefnið er að sækjast eftir
því að halda við kortagrunni en ekki kortasýn. Lokamarkmiðið er ekki
að fá fólk til að nota http://www.openstreetmap.org í stað
http://maps.google.com eða http://ja.is/kort/ heldur að fá þá
síðarnefndu til að nota gögn frá okkur í stað NAVTEQ eða Samsýn.

En nóg um það. Hér er tölfræðilegt yfirlit yfir breytingar á síðasta
ári, eða 1. desember 2008 til 1. desember 2009

  Hnútar: +47.3% (222.540 í 327.739
  Vegir: +54.1% (11.134 í 17.159)
  Vensl: +442% (69 í 374)
  Stök (í venslum): +522% (273 í 1.698)
  Eigindi: +7.2% (136.035 í 145.789)
  Iceland.osm (XML): +80.5% (36MB í 65MB)

Hnútar eru punktar á kortinu, vegir eru svo línur samansettar úr 2 eða
fleiri punktum, vensl eru yfirtýpur notaðar til að lýsa t.d.
þjóðvegum, strætóleiðum o.fl. og eru stök hnútar, vegir og vensl sem
eru stök í venslum. Eigindi eru svo "tögg" á hnútum, vegum og venslum
sem við notum til að lýsa hvers kyns hlut er um að ræða.

Þetta segir manni svo sem ekki mikið, svo að hérna er þetta í
sjónrænna formi eftir völdum svæðum á landinu, bæði í osmdiff myndum
og með tenglum á OpenStreetMap. Svartir litir tákna nýja hluti, rautt
þeim sem hefur verið eytt, bláir eru gamlir hlutir með nýja
staðsetningu og gulir eru sömu hlutirnir með ný eigindi. Athugið að
allar myndirnar er hægt að nálgast í hárri upplausn á flickr og hérna:
http://osm.nix.is/diff/archive/2009-12-01/

= Ísland allt:
  http://www.flickr.com/photos/avarab/4162703039/in/set-72157622947276842/
  http://osm.org/go/e1pRE--

= Reykjavíkursvæðið:

  Við Reykjavíkursvæðið er búið að bæta miklu á síðasta ári.
Mosfellsbær hefur stórskánað, ýmis hverfi eins og Breiðholtið (f. utan
Seljahverfi), Norðlingaholt, Lönd o.fl. sem voru með ókláruð veganet
eru nú vel á veg komin. Álftanesinu var bætt við, Heiðmörkin er komin
í ágætisstand og að lokum hefur mikið verið betrumbætt í kringum svæði
sem þegar voru inni. T.d. hjá Kringlunni, Smáralind og í miðbæ
Reykjavíkur svo eitthvað sé nefnt.

  http://www.flickr.com/photos/avarab/4163471758/in/set-72157622947276842/
  http://osm.org/go/e0Uud0r-

  Kópavogur:
    Svæðið í kringum Smáralind hefur mikið skánað en að öðru leiti
hafa litlar breytingar verið gerðar.
    http://www.flickr.com/photos/avarab/4163470486/in/set-72157622947276842/
    http://osm.org/go/e0UuTE2--

  Hafnarfjörður:
    Lítið er um breytingar í Hafnarfirði, en einu heilu hverfi var bætt við.
    http://www.flickr.com/photos/avarab/4163471558/in/set-72157622947276842/
    http://osm.org/go/e0UpdUB--

= Akureyri:
  Akureyrarbær var þegar vel kortlagður en á síðasta ári var bætt við
landnýtingarsvæðum, Glerártorgi, Háskólasvæðinu og Lystigarðinum svo
eitthvað sé nefnt.
  http://www.flickr.com/photos/avarab/4163472592/in/set-72157622947276842/
  http://osm.org/go/e1sW7Nm--

= Ísafjörður:
  Ísafjörður og Vestfirðirnir allir hafa stórskánað á síðasta ári, en
enn vantar mikið upp á.
  http://www.flickr.com/photos/avarab/4162711247/in/set-72157622947276842/
  http://osm.org/go/efvVlur

= Nýtt á kortinu:

Eftirfarandi svæðum hefur verið algerlega bætt við á síðasta ári:

  Akranes:
    Akranes var kortlagt á tveimur dögum og er nú eitt best kortlagði
bærinn á Íslandi og er gott dæmi um hvað er hægt að gera á stuttum
tíma.
    http://www.flickr.com/photos/avarab/4162711993/in/set-72157622947276842/
    http://osm.org/go/e0U17h0

  Ásbrú:
    Ásbrú er eini bæjarhlutinn sem hefur nær eingöngu verið kortlagður
úr opinberum gögnum. Við fengum gögn frá Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar sem sýndu byggingar, Detox Jónínu Ben og annað.
    http://www.flickr.com/photos/avarab/4163470746/in/set-72157622947276842/
    http://osm.org/go/e...@tzl

  Dalvík:
    http://www.flickr.com/photos/avarab/4163470284/in/set-72157622947276842/
    http://osm.org/go/e1nzDZlg-

  Eskifjörður:
    http://www.flickr.com/photos/avarab/4162710787/in/set-72157622947276842/
    http://osm.org/go/e3hAx0Q

  Húsavík:
    http://www.flickr.com/photos/avarab/4163470574/in/set-72157622947276842/
    http://osm.org/go/e1vc20y

  Neskaupstaður:
    http://www.flickr.com/photos/avarab/4163472304/in/set-72157622947276842/
    http://osm.org/go/e3hkNVU

  Vestmannaeyjar:
    http://www.flickr.com/photos/avarab/4163472056/in/set-72157622947276842/
    http://osm.org/go/e0aHYXJ-

  Ólafsfjörður:
    Ólafsfjörður er dæmi um lítinn bæ sem var að mestu kortlagður á
nokkurra klukkutíma rúnti.
    http://www.flickr.com/photos/avarab/4162712329/in/set-72157622947276842/
    http://osm.org/go/e1nf4g8q-

  Sumarbúðirnar á Eyrarvatni:
    http://osm.org/go/e0XMAd9F

= Annað:

  Þjóðvegir:
    Mikið hefur bæst við þjóðvegi á kortinu og erum við að reyna að
búa til vensl fyrir þá alla og halda úti lista yfir þá hérna:
      
http://is.wikipedia.org/wiki/Listi_yfir_%C3%BEj%C3%B3%C3%B0vegi_%C3%A1_%C3%8Dslandi
    Hér er t.d. dæmi um vensl fyrir Hringveginn:
      http://www.openstreetmap.org/browse/relation/65617

  Vötn & ár:
    Það er töluvert af nýjum vötnum og ám á kortinu sem teiknuð hafa
verið upp úr Landsat myndum frá NASA. Enn er mjög mikið eftir í þessum
efnum og auðvelt að leggja til gögn með því að rekja þessar myndir án
þess að fara úr húsi.

= Þýðingar:

OpenStreetMap vefurinn http://openstreetmap.org og Potlatch ritillin
sem aðgengilegur er á sama vef hafa verið þýddir á íslensku á síðasta
ári. Vefurinn sést á íslensku sé hann skoðaður í vafra sem gefur sig
út fyrir að vilja íslenskt efni (með Accept-Language) en annars þarf
að búa til notanda og stilla viðmótstungumál í notandastillingum.

JOSM ritillinn (http://josm.openstreetmap.de/) sem hægt er að hlaða
niður hefur einnig verið að miklu leiti þýddur. Stór hluti af því
viðmóti sem venjulegir notendur sjá er á íslensku.



En nóg um breytingar á síðasta ári. Ég er örugglega að gleyma
einhverju mikilvægu en í stórum dráttum ætti þetta að fjalla um
meginatriðin. Hér er smá yfirlit fyrir áhugasama um hvernig hægt er að
taka þátt.

= Að skoða gögnin

Það er ekki bara hægt að skoða gögnin á http://openstreetmap.org
heldur eru margir sem bjóða upp á kortasýnir sem bjóða upp á ýmsa
möguleika. Hér er stuttur listi af þeim:

  http://wiki.openstreetmap.org/wiki/List_of_OSM_based_Services

Til að sjá gögnin á vektorformi er best að ná í JOSM og opna daglega
dumpið af Íslandi:

  http://josm.openstreetmap.de/#Download
  http://osm.nix.is/latest/Iceland.osm.bz2

= Að nota gögnin

Ef þú átt iPhone, Android eða annan "smart" síma getur þú líkast til
skoðað OSM á honum og jafnvel breytt líka. Prófaðu að leita að símanum
þínum á http://wiki.openstreetmap.org

Ef þú átt Garmin GPS tæki getur þú sett kortið þar inn í staðinn fyrir
eða ásamt öðrum kortum. Hægt er að ná í eitt slíkt hér:

  http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Garmin_map_of_Iceland

Það eru einnig margir aðrir að halda úti Garmin kortum, sum þeirra
þekja einnig Ísland:

  http://wiki.openstreetmap.org/wiki/OSM_Map_On_Garmin/Download

= Að bæta við gögnin

GPS tæki er engin forsenda fyrir því að breyta kortinu þótt það hjálpi
vissulega, t.d. er hægt að bæta við verslunum og öðrum punktum í
grunninn útfrá veganetinu sem til er nú þegar.

Með GPS tæki er hægt að bæta við nýjum vegum og gera eldri vegi
nákvæmari. Ef þú nennir ekki að taka upp GPS feril og breyta kortinu
geturu bara búið til ferilinn, sent hann inn og bent
[email protected] listanum á að hann sé til. Þá bætir einhver
líkast til inn gögnunum fyrir þig.

Einnig er mikið um verkefni fyrir þá sem nenna ekki út úr húsi,
sérstaklega fyrir forritara. Það þarf að rekja Landsat myndir, búa til
forrit til að flytja inn póstnúmeraskrá (sjá
http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Iceland_postal_code_database),
flytja GNS gögn inn á kortið o.fl.

= Spurningar?

Endilega spurjið ef eitthvað er óljóst eða þið viljið vita meira.

_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to