2009/12/6 Ævar Arnfjörð Bjarmason <[email protected]>

> 2009/12/6 Einar Indridason <[email protected]>:
> > 2009/12/6 Ævar Arnfjörð Bjarmason <[email protected]>
> >>
> >> Það hafa orðið miklar framfarir í því að setja OSM kortið inn á Garmin
> >> tæki á síðasta ári og eitt af því sem virkar núna er að búa þau til
> >> með route möguleika. Fyrrnefnt kort mitt af Íslandi er búið til með
> >> route möguleika og er með leiðarlýsingu (sem er búin til sjálfkrafa af
> >> tækinu sjálfu), sjá t.d. þetta skjáskot af rútun í Reykjavík:
> >
> > Er gjörlegt að setja OSM kort í Garmin tæki með Linux?
>
> Já. Ég hef aldrei gert það öðruvísi. Flest Garmin tækjana styðja að
> fara í USB Mass Storage ham þannig að þau koma upp sem venjulegur
> diskur í Linux. Þá einfaldlega afritar maður gmapsupp.img skránna í
> /media/gps/Garmin/ og endurræsir svo tækið.
>

Gott mál.  (Kannski mar ætti að fara að huga að því að uppfæra?)


> Sum tækjana hinsvegar (ekkert sem enn er selt í dag held ég) nota
> einhvern lokaðan USB serial protocol til að senda kortið yfir. Þá
> geturu ef þú ert með Linux á x86 samhæfum örgjöva náð í ókepis en
> lokaða forritið sendmap og sent kortið yfir þannig.
>

Júbbs.  Eins og mitt.  Bugger.  Sendmap.   Skoða það...


>
> Í versta tilfelli geturu keyrt MapSource í Wine, en ég veit ekki um
> nokkurn mann sem hefur þurft að fara þá leið.
>

Ég hef afskaplega lítinn áhuga á að keyra eitt eða neitt svona í "ljóra" eða
"ljóra-hermum".

Takk fyrir svörin, og takk fyrir skýrsluna... þetta er fín skýrsla og gott
að heyra af þessu :-)

--
EinarI
_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to