Komið þið sæl! Við félagarnir hjá Músík og sögu ehf. komumst inn á póstlistann ykkar fyrir ári þegar við studdum lítilsháttar síðustu ráðstefnu. Þykir okkur þetta kortaverkefni afar áhugavert og einmitt í þeim anda sem við höfum hugsað um frítt aðgengi almennings að upplýsingum á Netinu. Nú er það þannig að við höfum verið að vinna ýmis verkefni fyrir gagnagrunn sem við erum með á netinu <www.ismus.musik.is> þar sem við erum að miðla menningararfi þjóðarinnar. Þessi grunnur eins og hann er núna er eldri gerð, en við erum að leita að fjármagni fyrir forritun á leitarvél sem hefur fleiri upplýsingar og geysi mikið gagnamagn. Má þarna nefna verkefni eins og Munnleg geymd þar sem við erum að setja á Netið um 2000 klukkutíma af viðtölum við um 2100 íslendinga sem tekin voru á 7. og 8. áratugnum og varða allt sem hugsast getur um íslenska menningu og þjóðhætti - þarna undir staðar- og örnefnalýsingar ofl. ofl. Hugmyndir okkar eru að í tengslum við nýja uppfærslu á þessum grunni verði forriuð einhver gátt sem gefur upp staðsetningar á þann hátt að síminn þinn þekki staðsetninguna og maður geti tengst beint inn í þessa slóð og fengið frásögnina úr Munnlegri geymd.
Annað verkefni sem við höfum unnið að er að skrásetja allar kirkjur á landinu og erum við búnir að heimsækja svo að segja allar kirkjur utan Reykjavíkur, sem við höfum myndað í bak og fyrir og hljóðritað upptökur af orgelum kirknanna. En um leið höfurm við tekið gsp. punktinn á hverri kirkju auk þess, í flestum tilfellum trakkað keyrslurnar. Þriðja er að ég er sjálfur mikill áhugamaður um fjallgöngur og á eftir það töluvert af göngutrökkum - m.a. allt frá Reykjanestá norður í Ásbyrgi - og geng næsta sumar frá Ásbyrgi á Langanes. Okkar spurning er því hvort þið hefðuð áhuga á að fá þessar gps. upplýsingar fyrir kortaverkefnið. Nú veit ég ekki sjálfur hvort maður á sjálfur að setja þessar upplýsingar inn eða hvort þið eruð með einhverja sem vinna að því. Gaman væri að vita hvort þið hefðuð áhuga á þessum upplýsingum, að sjálfsögðu sem frítt framlag okkar til verkefnisins. Með vinsemd, Bjarki Sveinbjörnsson Jón Hrólfur Sigurjónsson. On 6.12.2009, at 22:08, Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote: > 2009/12/6 Einar Indridason <[email protected]>: >> 2009/12/6 Ævar Arnfjörð Bjarmason <[email protected]> >>> >>> Það hafa orðið miklar framfarir í því að setja OSM kortið inn á >>> Garmin >>> tæki á síðasta ári og eitt af því sem virkar núna er að búa þau til >>> með route möguleika. Fyrrnefnt kort mitt af Íslandi er búið til með >>> route möguleika og er með leiðarlýsingu (sem er búin til >>> sjálfkrafa af >>> tækinu sjálfu), sjá t.d. þetta skjáskot af rútun í Reykjavík: >> >> Er gjörlegt að setja OSM kort í Garmin tæki með Linux? > > Já. Ég hef aldrei gert það öðruvísi. Flest Garmin tækjana styðja að > fara í USB Mass Storage ham þannig að þau koma upp sem venjulegur > diskur í Linux. Þá einfaldlega afritar maður gmapsupp.img skránna í > /media/gps/Garmin/ og endurræsir svo tækið. > > Hérna eru leiðbeiningar fyrir þetta: > > http://wiki.openstreetmap.org/wiki/ > OSM_Map_On_Garmin#Everywhere_else > > Sum tækjana hinsvegar (ekkert sem enn er selt í dag held ég) nota > einhvern lokaðan USB serial protocol til að senda kortið yfir. Þá > geturu ef þú ert með Linux á x86 samhæfum örgjöva náð í ókepis en > lokaða forritið sendmap og sent kortið yfir þannig. > > Í versta tilfelli geturu keyrt MapSource í Wine, en ég veit ekki um > nokkurn mann sem hefur þurft að fara þá leið. > > _______________________________________________ > Fsfi mailing list > [email protected] > http://postlists.1984.is/cgi-bin/mailman/listinfo/fsfi _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
