Hæ ég var að velta fyrir mér hvort það væri sniðugt að hafa samband við
sveitarfélögin og vegagerðina um að fá upplýsingar frá þeim. Ég veit að
það er hægt að fá staðsettningar á lóðum frá þeim einfaldlega. Þeir
hljóta að hafa eitthvað ferli varðandi þetta og ef ekki er hægt að
þrýsta á þá að veita þessar upplýsingar þar sem þetta er almenningseign.

Vandinn við þetta er kannski of mikið af upplýsinum. Ég vinn fyrir
verktakafyrirtæki og við erum með fjöldan allan af götum mældar en þær
eru alltof nákvæmar fyrir þetta.

Kveðja,
Ólafur Arason

On Sun, 2009-12-06 at 21:15 +0000, Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote:
> Ævar heiti ég og vil gefa ykkur smá skýrslu um það hvernig
> OpenStreetMap verkefninu hefur farnað á síðastliðnu ári þegar kemur að
> Íslandi. Ég sendi skilaboðin á FSFÍ og RGLUG listann auk póslistans
> fyrir OSM á Íslandi þar sem árlegar stöðuskýrslur um frjáls verkefni
> tengd Íslandi eru örugglega vel þegnar þar.
> 
> Fyrir þá sem ekki vita er OpenStreetMap kortagrunnur af allri jörðinni
> sem inniheldur efni undir frjálsu leyfi (CC-BY-SA) og miðar að því að
> verða aðalupplýsingaveitan fyrir kortagögn, rétt eins og Wikipedia er
> orðin aðalveitan fyrir alfræðigögn.
> 
> Það er misjafnt eftir svæðum hvernig því lokamarkmiði gengur. Á sumum
> átaka- og fátæktarsvæðum er OpenStreetMap kortið það besta sem til er
> því engin önnur samtök hafa áhuga á að legga vinnu í slíka
> kortlagningu, en á flestum stöðum í heiminum erum við enn að rekja
> lestina miðað við ófrjálsa ríkisstyrkta grunna sem hafa áratugsforskot
> á okkur. En jafnvel á þeim svæðum erum við oft betri. Það eru t.d.
> margir göngustígar og slóðar á OpenStreetMap á Íslandi sem eru ekki á
> neinu öðru korti því það svarar ekki kostnaði að kortleggja þá.
> 
> Eðli grunnsins fer mikið eftir svæðum. Sums staðar, t.d. í
> Bandaríkjunum, voru þegar til stórir kortagrunnar undir frjálsum
> leyfum (TIGER) sem lögð er mikil vinna í að leiðrétta og bæta. Á öðrum
> stöðum, t.d. í flestum stórborgum Evrópu, eru til góðar loftmyndir í
> boði Yahoo! sem nægja til að rekja allt niður í gangstéttir og fer
> mikil vinna í að teikna upp eftir þeim.
> 
> Á Íslandi hinsvegar er nánast allt efnið í grunninum með örfáum
> undantekningum rekið upp úr GPS ferlum. Notendur fara um götur, stíga
> og annað með GPS tæki og teikna svo upp vegi, punkta og fleira upp úr
> þessum ferlum.
> 
> Annað sem vert er að taka fram er að OSM verkefnið er að sækjast eftir
> því að halda við kortagrunni en ekki kortasýn. Lokamarkmiðið er ekki
> að fá fólk til að nota http://www.openstreetmap.org í stað
> http://maps.google.com eða http://ja.is/kort/ heldur að fá þá
> síðarnefndu til að nota gögn frá okkur í stað NAVTEQ eða Samsýn.
> 
> En nóg um það. Hér er tölfræðilegt yfirlit yfir breytingar á síðasta
> ári, eða 1. desember 2008 til 1. desember 2009
> 
>   Hnútar: +47.3% (222.540 í 327.739
>   Vegir: +54.1% (11.134 í 17.159)
>   Vensl: +442% (69 í 374)
>   Stök (í venslum): +522% (273 í 1.698)
>   Eigindi: +7.2% (136.035 í 145.789)
>   Iceland.osm (XML): +80.5% (36MB í 65MB)
> 
> Hnútar eru punktar á kortinu, vegir eru svo línur samansettar úr 2 eða
> fleiri punktum, vensl eru yfirtýpur notaðar til að lýsa t.d.
> þjóðvegum, strætóleiðum o.fl. og eru stök hnútar, vegir og vensl sem
> eru stök í venslum. Eigindi eru svo "tögg" á hnútum, vegum og venslum
> sem við notum til að lýsa hvers kyns hlut er um að ræða.
> 
> Þetta segir manni svo sem ekki mikið, svo að hérna er þetta í
> sjónrænna formi eftir völdum svæðum á landinu, bæði í osmdiff myndum
> og með tenglum á OpenStreetMap. Svartir litir tákna nýja hluti, rautt
> þeim sem hefur verið eytt, bláir eru gamlir hlutir með nýja
> staðsetningu og gulir eru sömu hlutirnir með ný eigindi. Athugið að
> allar myndirnar er hægt að nálgast í hárri upplausn á flickr og hérna:
> http://osm.nix.is/diff/archive/2009-12-01/
> 
> = Ísland allt:
>   http://www.flickr.com/photos/avarab/4162703039/in/set-72157622947276842/
>   http://osm.org/go/e1pRE--
> 
> = Reykjavíkursvæðið:
> 
>   Við Reykjavíkursvæðið er búið að bæta miklu á síðasta ári.
> Mosfellsbær hefur stórskánað, ýmis hverfi eins og Breiðholtið (f. utan
> Seljahverfi), Norðlingaholt, Lönd o.fl. sem voru með ókláruð veganet
> eru nú vel á veg komin. Álftanesinu var bætt við, Heiðmörkin er komin
> í ágætisstand og að lokum hefur mikið verið betrumbætt í kringum svæði
> sem þegar voru inni. T.d. hjá Kringlunni, Smáralind og í miðbæ
> Reykjavíkur svo eitthvað sé nefnt.
> 
>   http://www.flickr.com/photos/avarab/4163471758/in/set-72157622947276842/
>   http://osm.org/go/e0Uud0r-
> 
>   Kópavogur:
>     Svæðið í kringum Smáralind hefur mikið skánað en að öðru leiti
> hafa litlar breytingar verið gerðar.
>     http://www.flickr.com/photos/avarab/4163470486/in/set-72157622947276842/
>     http://osm.org/go/e0UuTE2--
> 
>   Hafnarfjörður:
>     Lítið er um breytingar í Hafnarfirði, en einu heilu hverfi var bætt við.
>     http://www.flickr.com/photos/avarab/4163471558/in/set-72157622947276842/
>     http://osm.org/go/e0UpdUB--
> 
> = Akureyri:
>   Akureyrarbær var þegar vel kortlagður en á síðasta ári var bætt við
> landnýtingarsvæðum, Glerártorgi, Háskólasvæðinu og Lystigarðinum svo
> eitthvað sé nefnt.
>   http://www.flickr.com/photos/avarab/4163472592/in/set-72157622947276842/
>   http://osm.org/go/e1sW7Nm--
> 
> = Ísafjörður:
>   Ísafjörður og Vestfirðirnir allir hafa stórskánað á síðasta ári, en
> enn vantar mikið upp á.
>   http://www.flickr.com/photos/avarab/4162711247/in/set-72157622947276842/
>   http://osm.org/go/efvVlur
> 
> = Nýtt á kortinu:
> 
> Eftirfarandi svæðum hefur verið algerlega bætt við á síðasta ári:
> 
>   Akranes:
>     Akranes var kortlagt á tveimur dögum og er nú eitt best kortlagði
> bærinn á Íslandi og er gott dæmi um hvað er hægt að gera á stuttum
> tíma.
>     http://www.flickr.com/photos/avarab/4162711993/in/set-72157622947276842/
>     http://osm.org/go/e0U17h0
> 
>   Ásbrú:
>     Ásbrú er eini bæjarhlutinn sem hefur nær eingöngu verið kortlagður
> úr opinberum gögnum. Við fengum gögn frá Þróunarfélagi
> Keflavíkurflugvallar sem sýndu byggingar, Detox Jónínu Ben og annað.
>     http://www.flickr.com/photos/avarab/4163470746/in/set-72157622947276842/
>     http://osm.org/go/e...@tzl
> 
>   Dalvík:
>     http://www.flickr.com/photos/avarab/4163470284/in/set-72157622947276842/
>     http://osm.org/go/e1nzDZlg-
> 
>   Eskifjörður:
>     http://www.flickr.com/photos/avarab/4162710787/in/set-72157622947276842/
>     http://osm.org/go/e3hAx0Q
> 
>   Húsavík:
>     http://www.flickr.com/photos/avarab/4163470574/in/set-72157622947276842/
>     http://osm.org/go/e1vc20y
> 
>   Neskaupstaður:
>     http://www.flickr.com/photos/avarab/4163472304/in/set-72157622947276842/
>     http://osm.org/go/e3hkNVU
> 
>   Vestmannaeyjar:
>     http://www.flickr.com/photos/avarab/4163472056/in/set-72157622947276842/
>     http://osm.org/go/e0aHYXJ-
> 
>   Ólafsfjörður:
>     Ólafsfjörður er dæmi um lítinn bæ sem var að mestu kortlagður á
> nokkurra klukkutíma rúnti.
>     http://www.flickr.com/photos/avarab/4162712329/in/set-72157622947276842/
>     http://osm.org/go/e1nf4g8q-
> 
>   Sumarbúðirnar á Eyrarvatni:
>     http://osm.org/go/e0XMAd9F
> 
> = Annað:
> 
>   Þjóðvegir:
>     Mikið hefur bæst við þjóðvegi á kortinu og erum við að reyna að
> búa til vensl fyrir þá alla og halda úti lista yfir þá hérna:
>       
> http://is.wikipedia.org/wiki/Listi_yfir_%C3%BEj%C3%B3%C3%B0vegi_%C3%A1_%C3%8Dslandi
>     Hér er t.d. dæmi um vensl fyrir Hringveginn:
>       http://www.openstreetmap.org/browse/relation/65617
> 
>   Vötn & ár:
>     Það er töluvert af nýjum vötnum og ám á kortinu sem teiknuð hafa
> verið upp úr Landsat myndum frá NASA. Enn er mjög mikið eftir í þessum
> efnum og auðvelt að leggja til gögn með því að rekja þessar myndir án
> þess að fara úr húsi.
> 
> = Þýðingar:
> 
> OpenStreetMap vefurinn http://openstreetmap.org og Potlatch ritillin
> sem aðgengilegur er á sama vef hafa verið þýddir á íslensku á síðasta
> ári. Vefurinn sést á íslensku sé hann skoðaður í vafra sem gefur sig
> út fyrir að vilja íslenskt efni (með Accept-Language) en annars þarf
> að búa til notanda og stilla viðmótstungumál í notandastillingum.
> 
> JOSM ritillinn (http://josm.openstreetmap.de/) sem hægt er að hlaða
> niður hefur einnig verið að miklu leiti þýddur. Stór hluti af því
> viðmóti sem venjulegir notendur sjá er á íslensku.
> 
> 
> 
> En nóg um breytingar á síðasta ári. Ég er örugglega að gleyma
> einhverju mikilvægu en í stórum dráttum ætti þetta að fjalla um
> meginatriðin. Hér er smá yfirlit fyrir áhugasama um hvernig hægt er að
> taka þátt.
> 
> = Að skoða gögnin
> 
> Það er ekki bara hægt að skoða gögnin á http://openstreetmap.org
> heldur eru margir sem bjóða upp á kortasýnir sem bjóða upp á ýmsa
> möguleika. Hér er stuttur listi af þeim:
> 
>   http://wiki.openstreetmap.org/wiki/List_of_OSM_based_Services
> 
> Til að sjá gögnin á vektorformi er best að ná í JOSM og opna daglega
> dumpið af Íslandi:
> 
>   http://josm.openstreetmap.de/#Download
>   http://osm.nix.is/latest/Iceland.osm.bz2
> 
> = Að nota gögnin
> 
> Ef þú átt iPhone, Android eða annan "smart" síma getur þú líkast til
> skoðað OSM á honum og jafnvel breytt líka. Prófaðu að leita að símanum
> þínum á http://wiki.openstreetmap.org
> 
> Ef þú átt Garmin GPS tæki getur þú sett kortið þar inn í staðinn fyrir
> eða ásamt öðrum kortum. Hægt er að ná í eitt slíkt hér:
> 
>   http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Garmin_map_of_Iceland
> 
> Það eru einnig margir aðrir að halda úti Garmin kortum, sum þeirra
> þekja einnig Ísland:
> 
>   http://wiki.openstreetmap.org/wiki/OSM_Map_On_Garmin/Download
> 
> = Að bæta við gögnin
> 
> GPS tæki er engin forsenda fyrir því að breyta kortinu þótt það hjálpi
> vissulega, t.d. er hægt að bæta við verslunum og öðrum punktum í
> grunninn útfrá veganetinu sem til er nú þegar.
> 
> Með GPS tæki er hægt að bæta við nýjum vegum og gera eldri vegi
> nákvæmari. Ef þú nennir ekki að taka upp GPS feril og breyta kortinu
> geturu bara búið til ferilinn, sent hann inn og bent
> [email protected] listanum á að hann sé til. Þá bætir einhver
> líkast til inn gögnunum fyrir þig.
> 
> Einnig er mikið um verkefni fyrir þá sem nenna ekki út úr húsi,
> sérstaklega fyrir forritara. Það þarf að rekja Landsat myndir, búa til
> forrit til að flytja inn póstnúmeraskrá (sjá
> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Iceland_postal_code_database),
> flytja GNS gögn inn á kortið o.fl.
> 
> = Spurningar?
> 
> Endilega spurjið ef eitthvað er óljóst eða þið viljið vita meira.
> 
> _______________________________________________
> Fsfi mailing list
> [email protected]
> http://postlists.1984.is/cgi-bin/mailman/listinfo/fsfi


-- 
Kveðja,
Ólafur Arason


_______________________________________________
Talk-is mailing list
[email protected]
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to