> Okkar spurning er því hvort þið hefðuð áhuga á að fá þessar gps. > upplýsingar fyrir kortaverkefnið. Nú veit ég ekki sjálfur hvort maður > á sjálfur að setja þessar upplýsingar inn eða hvort þið eruð með > einhverja sem vinna að því. > > Gaman væri að vita hvort þið hefðuð áhuga á þessum upplýsingum, að > sjálfsögðu sem frítt framlag okkar til verkefnisins.
Öll gögn eru mjög vel þegin. Ef þú treystir þér ekki til að setja þau inn sjálfur eða hefur ekki tíma til að setja þig inn í það ferli þá er lítið mál að senda þau á póstlistann og einhver af okkur getur þá séð um að setja þau inn. Ef um mjög mikið magn gagna er að ræða þá væri kannski betra að koma gögnunum á netið í zip skrá því það er hugsanlegt að það þyrfti að vinna eitthvað úr gögnunum áður en það er hægt að koma þeim í gagnagrunna OSM. Þú mátt líka senda mér þessi gögn beint og ég get þá séð um að gera þau aðgengileg fyrir okkur sem eru að vinna í þessu. kv DG _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
