2009/12/6 Svavar Lúthersson <[email protected]>: > Ég ætlaði að setja OSM kortið inn á Garmin GPS tækið mitt fyrir um ári > síðan en gat bara alls ekki búið til kort með route möguleika. Það > endaði á því að ég neyddist til að kaupa Íslandskort af R. Sigmundsson > svo ég gæti fengið leiðarlýsingu. Er komið slíkt forrit til að breyta > kortum af OSM-samhæfðu sniði í kort með leiðarlýsingu? Mig langar helst > ekki að þurfa alltaf að kaupa nýjustu útgáfuna af þessu blessaða korti.
Það hafa orðið miklar framfarir í því að setja OSM kortið inn á Garmin tæki á síðasta ári og eitt af því sem virkar núna er að búa þau til með route möguleika. Fyrrnefnt kort mitt af Íslandi er búið til með route möguleika og er með leiðarlýsingu (sem er búin til sjálfkrafa af tækinu sjálfu), sjá t.d. þetta skjáskot af rútun í Reykjavík: http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Image:Garmin-map-of-Iceland-Routeable-2.png Það er líka með leitarmöguleika þannig hægt er að leita að götum en þó ekki húsnúmerum, sem skiptir reyndar litlu máli fyrir Ísland þar sem við erum ekki með nema um 50 húsnúmer á meðan færeyingar eru með 20 þúsund :) > Ef ég fengi GPS tæki að láni sem styður hnútasöfnun skal ég glaður > kortleggja einhver „ókönnuð“ svæði á höfuðborgarsvæðinu. Ég er því miður ekki á landinu en ég sendi skilaboðin á talk-is@ ef svo skyldi vera að að einhver sé til í að lána þér tæki. Ef áætlunin var að keyra um á bíl og þú átt fartölvu vil ég líka benda þér á að einföld USB eða Bluetooth "data logger" tæki eru orðin mjög ódýr, allt niður í 30-40$. _______________________________________________ Talk-is mailing list [email protected] http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
